Veiðimaðurinn - 2024, Blaðsíða 96
kjölfar þess fylgdu erfið rekstrarár, þar
sem skuldbindingar félagsins og tekjur
þróuðust með ólíkum hætti og eigið fé
varð um tíma neikvætt.
Það er mikið fagnaðarefni að SVFR hafi
náð fyrri styrk, enda gerir það félaginu
kleift að þjónusta félagsmenn enn betur,
halda verði veiðileyfa í lágmarki og efla
samfélag veiðimanna. Hitt er ljóst að
áfram þarf að halda fast um stjórnartaum-
ana, enda eru skuldbindingar félagsins
miklar og samdráttur í eftirspurn getur
haft skjót áhrif á efnahag þess. Þannig
eru blikur á lofti fyrir komandi sumar,
þar sem erlendir veiðimenn munu ekki
skila sér til Íslands í sama mæli og áður,
en þeir hafa verið mikilvægir viðskipta-
vinir um langt skeið. Stjórn mun fylgjast
náið með þróun mála á næstu vikum og
bregðast við ef aðstæður krefjast til að
verja hagsmuni SVFR.
Rekstur SVFR ehf. var með svipuðu sniði
og undanfarin ár, en einkahlutafélagið
heldur utan um og selur alla þjónustu sem
félagið selur meðfram veiðileyfasölu, svo
sem gistingu og leiðsögn.
Veiðkortið
SVFR ehf. er einnig helmingseigandi að
Veiðikortinu, sem er frábær valkostur fyrir
hvern þann sem kýs að veiða í vötnum
fyrir lítið. Sala Veiðikortsins gekk vel á
síðasta ári og ágætur hagnaður var af
rekstri þess. Sumarið 2023 höfðu kort-
hafar aðgang að 37 veiðivötnum um allt
land, m.a. Hítarvatni, sem hafði ekki verið
hluti af Veiðikortinu um nokkurra ára
skeið. Í fyrsta sinn var boðið upp á raf-
rænt veiðikort, sem notendur gátu hlaðið
niður í símtækið sitt og framvísað í stað
hefðbundna plastkortsins. Margir nýttu
sér þessa nýjung og búast má við auknum
vinsældum hennar á komandi sumri.
Samstíga stjórn
Formlegir stjórnarfundir á liðnu starfs-
ári voru 20 talsins, en auk þeirra voru
ótal smærri fundir haldnir með viðsemj-
endum og öðrum hagsmunaaðilum, sem
og óformlegir smærri fundir vegna til-
tekinna verkefna o.fl. Stjórnarstörf gengu
afar vel, þar sem stjórnarmenn voru sam-
stíga í flestum málum og mikið traust
ríkti innan stjórnarinnar. Skiptar skoðanir
voru að sjálfsögðu á ýmsum málum en í
öllum tilvikum fékkst niðurstaða á mál-
efnalegan hátt, sem stjórn stendur heils
hugar bak við.
Samningar um ársvæði
Lítið var um útboð á veiðisvæðum á síð-
asta rekstrarári og svo virðist sem ákveðið
jafnvægi ríki á markaðnum. Félagið tók
ekki þátt í neinu útboði á nýafstöðnu ári en
endurnýjaði samninga um nokkur veiði-
svæði, til að mynda Flekkudalsá, Laugar-
dalsá og Miðá. Þá tókust samningar um
að SVFR annaðist sölu veiðileyfa í landi
Sels við Brúará, en það er skemmtilegt
og krefjandi veiðisvæði sem félagsmenn
fá nú gott tækifæri til að kynnast.
Húsnæðismál
Talsverðar framkvæmdir hafa verið á reit
Orkuveitunnar undanfarin ár, þar sem
96 Skýrsla stjórnar SVFR