Veiðimaðurinn - 2024, Síða 98
m.a. með harðorðri umsögn í samráðs-
gátt stjórnvalda þar sem nýtt lagafrum-
varp um fiskeldi var til umsagnar. Afstaða
sjálfra félagsmanna er afdráttarlaus, því í
viðhorfskönnun á haustdögum sögðust
86% félagsmanna andvíg fiskeldi í opnum
sjókvíum.
Rafrænar veiðibækur
Árið 2023 var tekin upp rafræn veiðiskrán-
ing. Hafrannsóknarstofnun (Haf og vatn)
setti upp rafræna veiðibók af því tilefni
og hvatti veiðifélög til að nota rafræna
skráningu frekar en veiðibækur. Það var
sem sagt samkomulag veiðiréttareiganda
og SVFR hvernig skráningu yrði háttað á
svæðum félagsins. SVFR gerði samning
við Angling IQ á flestum svæðum félags-
ins. Sum veiðisvæði kusu þó að nýta sér
þjónustu Hafs og vatns og önnur kusu
gömlu veiðibækurnar og vildu sjálf færa
gögnin yfir á rafrænt form eftir veiðitíma-
bilið.
Umsóknarferli og
úthlutun veiðileyfa
Úthlutun veiðileyfa fyrir komandi sumar
gekk afburðavel. Eftirspurn meðal félags-
manna var almennt mikil en vinsældir
ánna á höfuðborgarsvæðinu voru sérlega
eftirtektarverðar. Þannig slógu Elliðárnar
öll met, því í fyrsta sinn voru umsóknirnar
fleiri en stangirnar sem voru í boði. Mun-
aði reyndar miklu, því alls sóttu 902 ein-
staklingar um 778 dagsparta. Í nokkrum
tilvikum bárust yfir 30 umsóknir um ein-
staka vaktir, þar sem aðeins eru sex stangir
í boði. Samkvæmt venju réðst úthlutun á
útdrætti, þar sem framkvæmdin er orðin
slípuð og mjög gagnsæ. Gríðarleg eftir-
spurn var um haustdagana í Haukadalsá,
enda metveiði í september í fyrra, að auki
var mikil ásókn í leyfi í Miðá, Flekkudalsá,
Gljúfurá og Gufudalsá.
Þá er endurbókunarhlutfall hátt þetta
árið, t.d. í Mývatnssveit, Sandá og víðar,
og rekstrarhorfur því ágætar. Eins og áður
sagði hefur hins vegar dregið úr ásókn
þeirra erlendu veiðimanna sem hafa keypt
dýrustu leyfin og því er ljóst að fram undan
er talsverð vinna við sölu á þeim leyfum.
Sögunni komið í skjól
Á 85 ára æviskeiði SVFR hafa orðið til
margvísleg gögn með heimildargildi, t.d.
fundargerðabækur, ljósmyndir og aðrar
heimildir um starfsemina. Félagið hefur
lagt áherslu á varðveislu þessara gagna,
þótt aðstæður hafi stundum verið bágar,
og hefur nú samið við Borgarskjalasafn
Reykjavíkur um vörslu þeirra. Þá samdi
félagið við Landsbókasafnið um yfirfærslu
Veiðimannsins á stafrænt form og þannig
er þetta merka tímarit aðgengilegt öllum
án endurgjalds á vefnum timarit.is. Þannig
má segja að sögu SVFR hafi verið komið í
gott skjól, til varðveislu við bestu aðstæður
um ókomna tíð.
Lokaorð
Það styttist í vor og margir félagsmenn
SVFR eru komnir með fiðring í magann.
Eins og veiðimanna er von og vísa horfir
stjórn SVFR bjartsýn fram á veginn og
væntir góðs sumars, hvort sem veiðitölur
verða háar eða lágar. Við þökkum fyrir
liðið starfsár.
98 Skýrsla stjórnar SVFR