Skemmtisögur - 15.04.1953, Page 11

Skemmtisögur - 15.04.1953, Page 11
mér! — Nú, en við gætum auðvitað lagt yð- ur í bönd —“ „í bönd —“ hrópaði Kennetli æstur. „Verið nú rólegur, það var einungis hug- mynd. Við íinnum eflaust annað ráð! Ann- ars tekur mig sárt, að þér viljið flýja. Það var svo skemmtilegt að tala við yður.“ „Þakka — sömuleiðis. En hvernig — hvers vegna —!" „Nei, þér skiljið ekki hvað ég á við. Þannig er, að ég kem hingað aftur á morg- un, og ég geri ráð fyrir, að mér veitist aftur sú ánægja að borða með yður hádeg- isverð." Kenneth virti hana fyrir sér. Elöku- skarðið var sannarlega töfrandi. „Einn dagur til eða frá skiptir auðvitað engu máli,“ sagði hann, „og ef ég get feng- ið þá ánægju að njóta félagsskapar yðar enn einu sinni —!“ „Það getið þér, ef þér viljið sjálfur," sagði ungfrú Fenton og stóð upp, „ef þér verðið hér á morgun, borðum við hádegisverð saman eins og í dag. En nú verð ég að fara." Auðvitað fór það svo, að þau borðuðu saman á hverjum degi, og Kenneth fannst aldrei 14 dagar hafa venið jafnfljótir að h'ða. En nú vorti þeir liðnir og enn sátu þau andspænis hvort öðru við hádegisverð- arborðið. „Hr. Armitage," sagði ungfrú Fenton. „Þér hafið gert mér stóran greiða — en ég hef líklega gert yður að efnuðum manni. svo það getur jafnazt. Kenneth var löngu hættur að undrast nokkuð, svo þetta kom ekkí flatt upp á hann. „Jæja, en nú fáið þér að heyra skýring- una,“ hélt hún áfram. „Fyrst verð ég að segja yður, að ég vinn hjá Hollways-auglýs- ingastofunni og gegni þar trúnaðarstöðu. Fyrir um það bil þrem vikum kallaði sá gamli — hr. Hollway sem sagt — á mig inn til SKEMMTISÖGUR sín. „Þér eruð vön að geta komið því ótrúleg- asta til leiðar," sagði hann, „og ef þér getið leyst af hendi það verk, sem ég ætla nú að trúa yður fyrir, skuluð þér verða meðeig- andi í fyrirtækinu. Mig hefur lengi vantað einhverja unga driffjöður." — Þér getiið skilið, hr. Armitage, að forvitni mín var vakin. „Sjáið nú til," hélt Hollway áfram, „Mcrcury-Ieikhúsið er alveg að fara á haus- inn. Nú ætlar það að hafa frumsýningu á leikriti eftir ungan höfund. Leikhússtjór- inn segir að það sé gott. Og hann hefur beðið mig að annast auglýsingarnar. Við verðum að fá fólk til að koma. Farið nú og horfið á aðalæfinguna og sjáið, hvort nokk- uð er í það varið. Og sé svo, þá íarið og skipuleggið auglýsingu, sent fyllir húsið í hálft ár, að minnsta kosti. Fn allt þetta venjulega dugar ekki nú á tímum. Það þarf eitthvað æsandi!" Skiljið þér nú hr. Armi- tage?“ „Ekki vel — þó dálítið." ,, Já, svo lofaði ég sjálfri mér, að þetta skyldi verða sú mest æsandi frumsýning, sem „Mercury" hefði nokkru sinni sett á svið. Og ég hef staðið við það. Ég var þar reyndar ekki sjálf allan tímann, en ég hef fengið fréttir af þvi. Leikrit yðar olli afar mikilli hrifningu! Það var ákaft lófatak og fólk hrópaði á höfundinn. En hann kom nú ekki —“ „Nú, svoleiðis —“ tautaði Kennetli, og litli maðurinn — það voruð þér?“ „Já, það var ég.“ „Jæja, ég þekkti yður strax aftur.'* „En hlustið nú á framhalclið. Að lokurn kom leikhússtjórinn fram og tilkynnti, að höfundurinn væri horfinn á gersamlega ó- skiljanlegan hátt, og það varð fólk að láta sér nægja. Æsingin var ofboðsleg. Daginn eftir birtust umsagnirnar. Þær voru afar lofsamlegar, ég hef þær hér allar handa yður. En jafnframt voru blöðin full af frásögnum um hið dularfulla hvarf höf- 9

x

Skemmtisögur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skemmtisögur
https://timarit.is/publication/1958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.