Skemmtisögur - 15.04.1953, Page 12

Skemmtisögur - 15.04.1953, Page 12
undarins, af alls konar getgátum um, hvað komið hefði getað fyrir hann, af viðtölum við leikhússtjórann, sem lýstá því yfir, að það væri öldungis óhugsandi að komast út úr höfundastúkunni, án þess að sjást. Leit- að var til lögreglunnar, en hún gat ekkert að gert. Þetta var sem sagt æsiatburður sem um munaði — og það eina, sem dugar nú á dögum — og ieikhúsið seldi næsta dag alla aðgöngumiða fyrir átta daga fram í tímann fyrir tvöfalt verð. Allir urðu auðvitað að sjá leikrit „horfna höfundardns." J átta daga voruð þér á allra vörum. Nú er ekki talað og skrifað jafnrnikið um hið dularfulla hvarf yðar, en það gerir ekkert til, því nú hefur fólk lært að meta leikrit yðar og sér það vegna þess sjálfs. Það er orðið frægt og alltaf uppselt á hverja sýn- ingu fyrirfram. „Mercury" er bjargað og þér eruð orðinn efnaður. Segið mér, er þetta ekki auglýsing?" „Jú,“ svaraði Kenneth af sannfæringu. „Hallway er afar hrifinn af hugmynd minná og hefur gert mig að meðeigancla. Já, þér verðið að afsaka, að ég hef ekkert látið yður vita um afdrif leikritsins svona fengi. En ég þorði ekki að segja yður frá þessum framúrskarandi viðtökum. Ég var hrædd um, að þér mynduð brjótast út. Vilj- ið þér fyrirgefa mér?“ „Með mestu ánægju.“ „Ég þakka! — Og svo er það vandasama atriði, hvernig þér eigið að birtast á ný. Það myndi vera dálítið órómantískt ef þér kæmuð ednn góðan veðurdag og segðuð, að þér hefðuð verið numinn á brott í auglýs- ingaskyni. Þér megið helzt ekki sýna yður fyrst um sinn.“ „Nei, það skil ég vel,“ svaraði Kenneth, „og þér váljið láta mig hverfa. Því það er víst ekki ætlun yðar að fá mig til að dvelja hér.“ „Nei, það væri nú of harðneskjulegt." „Nú — harðneskjulegt —“ sagði Kenneth íbygginn, „það væri, svo sem engin teljandi harðneskja, svo fremi að við gætum haldið áfram að borða saman hádegisverð." „Jæja, en það er útilokað. Munið, að ég er orðin félagi, Hollwarys, það er afar margt sem kallar að, svo ég fæ varla tíma til að fara út úr skrifstofunni fyrst um sinn.“ „Jæja þá það,“ Kenneth beindi augun- um ósjálfrátt að hinu töfrandi hökuskarði hennar, „þá verð ég að taka eitthvað ann- að til bragðs.“ „Já, verið svo vænn að gera það!“ „Ég er fús til að hverfa svo sem tvo mán- uði — til Riviera t. d. það lítur út fyrir, að ég hafi efni á því nú. En með einu skil- yrði.“ „Og það er —?“ „Að ég megi halda áfram kunningsskap við yður, þegar ég kem aftur.“ Ungfrú Fenton leit á hann og skildi hann. Roði færðist hægt í kinnar hennar. „Það megið þér, Kenneth, svaraði hún og rétti honum höndina. „Ég fæ ekki skilið það frú, að þér skuluð láta það viðgangast að maðurinn yðar kalli yður Xantippu í viðtali við embsettisbræður sína.“ „Og það er bara af monti. Hann heldur, að þar sem hann er kvæntur Xantippu, muni félag- ar hans álíta hann vera Sókrates." )0 Ottó litli hefur eignazt systur. Hann veitir henni athygli í laumi og finnst nóg um hvað mikið er snúizt í kringum nýfædda barnið. Svo segir hann stillilega: „Mamma, á þessi ókunna stúlka að dvelja hjá okkur framvegis eða verður hún sótt aftur?“ SKEMMTISÖGUR

x

Skemmtisögur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skemmtisögur
https://timarit.is/publication/1958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.