Skemmtisögur - 15.04.1953, Síða 35

Skemmtisögur - 15.04.1953, Síða 35
eðlisfari, og hún hafði ekki íhugað þessa aug.lýsingu nema hálftíma, áður en hún kom auga á það furðulega samræmi í því, sem krafizt var, og því, sem hún sjálf kunni. Hún lét ekki undir höfuð leggjast að fara og finna frúna í Belgravíuflöt, og jarls- frúin tók henni af slíkum yndisþokka, að stúlkan var hvergi smeyk. „Þér eruð vel að yður í Frönsku? spurði hún. „Oui, oui,“ svaraði Geirþrúður hæversk- lega. „Og ítölsku?" hélt frúin áfram. „Oh, si“ .vagði Goirþrúður. ,,Og þýzku?“ sagði frúin hrifin. „Ah, ja,“ sagði Geirþrúður. „Og rússnesku?" „Yaw.“ „Og xúmensku?" ,Jep“ Furðulostin yfir liinni framúrskarandi kunnáttu stúlkunnar í tungumálum, leit jarlsfrúin nánar á hana. Hvar hafði hún séð þessa andlitsdrætti áður? Hún strauk höndinni um ennið og skirpti á gólfið, en nei, hún kom andlitinu ekki fyrir sig. „Nóg,“ sagði hún,“ ég ræð yður á stund- inni; á morgun farið þér til Nossatoss og bvrjið að kenna börnunum. Eg verð að bæta við, að auk þess er ætlazt til, að þér aðstoðið jarlinn við rússneskar bréfaskrift- ir. Hann á rniklar námur í Ischminsk.” Ischm.insk! hvers vegna ómaði nafnið í eyrum Geirjírúðar? Hvers vegna? Vegna þess, að það var nafnið, sem faðir hennar hafði skrifað eigin hendi á titilblað bókar- innar utn námuverkfræði. Hvaða leyndar- dómur var hér á ferðinni? Það var daginn eftir sem Geirþrúður ók upp trjágöngin. Hún sté niður úr vagninum, gekk fram hjá sjöfaldri röð einkenndsbúinna þjóna og inn í Nossatoss. SKEMMTISÖGUR „Velkomin,“ sagði jarlsfrúin og bar með henni töskuna upp á loft. Stúlkan kom brátt niður og var vísað inn í bókaherbergið og kynnt jarlinum. Jafnskjótt og augu jarlsins litu andlit hinn- ar nýju kennslukonu, hrökk hann greini- lega við. Hvar hafði hann séð þessa and- litsdrætti? Hvar var það? Á veðreiðum, í leikhúsi, í strætisvagni —. nei. Einhver hár- fínn minningastraumur bærðist í vitund lians. Flann gekk hratt að skenkiborðinu, tæmdi eitt og hálft glas brennivíns og varð á ný liinn fullkomni enski aðalsmaður. Á meðan Geirþrúður fer til barnastof- unnar til að kynna sér liin tvö gullhærðu smábörn, sem eiga að verða hennar hlut- skipti,, skulum v.ið nota tækifærið til að segja lítillega frá jarlinum og syni hans. Noss lávarður var fullkomið eintak af enskum .aðalsmanni og stjórnmálamanni Árin, sem hann hafði eytt í utanríkisþjón- ustunni í Konstantínópel, Pétursborg og Saltvatnsborg, höfðu veitt honum einkenn- andi fágun og virðuleik, en langdvalir hans á .St. Helena, Pictairneyju og Hamilton, Ontarió höfðu gert hann ónæman fyrir ut- anaðkomandi áhrifum. Áhugi hans fyrír útisporti gerði hann ástfólginn leiguíiðum sínum. Hann var af- burðamaður í refaveiðum, lnindaveiðum, svínadrápi, leðurblökuveiðum og íþrótt- um stéttar sinnar. L hinu síðarnefnda tilliti líktist RoTiald föður sínum. Frá því fyrsta hafði hann ver- ið hinn efnilegasti. í Eton hafði hann skarað fram úr í hanaati og eltingaleik, og í Gambridge hafði hann verið beztur í sín- um bekk í saumaskap. Nú þegar var farið að hvísla nafn hans í sambandi við lands- meistaratignina í ping-pong, sigur, sem vafalaust myndi fylgja sæti í þinginu. Þannig varð Geirþrúður kennslukona heimilsföst í Nossatoss. Dagarnir og v.ikurnar liðu. 33

x

Skemmtisögur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skemmtisögur
https://timarit.is/publication/1958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.