Stefnir - 15.08.1947, Qupperneq 5
1. árgangur
1. tölublað
Ágúst 1947
STEFNIR
Tímarit Landssambands íslenzkra útvegsmanna — Reykjavík
PRENTVERK AKRANESS H. F. PRENTAÐl
Upphafsorð
Þegar þetta fyrsta rit heildarsamtaka útvegsmanna hefur göngu
sína, þykir rétt að fylgja því úr hlaði með nokkrum orðum.
Frá því er Landssamhandið var endurskijndagt á haustmánuð-
um árið 1944, hefur margsinnis verið um það rœtt, live mikil nauð-
syn væri fyrir samtök útvegsmanna að eiga sitt eigið málgagn, hœði
til þess að þeim gefist kostur á að ræða um hagsmunamál sín og
hugðarefni inn á við, svo og til þess að hirta og herjast fyrir stefnu
og hagsmunamálum útvegsins og útvegsmanna út á við.
Vel kann svo að fara, að útvegsmönnum þyki hér ekki myndar-
lega af stað farið, um ytra form og frágang ritsins. Um þetta atriði
munu þó ætíð verða skiptar skoðanir. Tvenni þurfti sérstaklega að
liafa lmgfast í þessum efnum: Ritið mátti eklci verða of dýrt. I
þeim ef?ium þarf að sníða sér stakk eftir vexti. 1 öðru lagi var
nauðsynlegt að ritið yrði sem handhægast útvegsmönnum, þar sem
því er m. a. œtlað það hlutverk að flytja margháttaðan fróðleik og
upplýsingar, sem lesendur þess þurfa oft að grípa til; svo sem birt-
ingu kjarasamninga á fiskiskipum, upplýsingar um markaðshorfur,
fiskverð og annað, er snertir daglegan rekstur fiskiskipaflotans. Þá
STEFNIR
1