Stefnir - 15.08.1947, Blaðsíða 31

Stefnir - 15.08.1947, Blaðsíða 31
Laganefnd: Sverrir Júlíusson, Keflavík, Loftur Bjarna- son, Hafnarfirði, Eiríkur Asbjörnsson, Vestmanna- eyjum, og Ivarvel Ogmunds- son, Njarðvík. Afurðasölunefnd: Ólafur Jóns- son, Sandgerði, Hafsteinn Bergþórsson, Reykjavík, Loftur Bjarnason, Hafnar- firði, Sigurður Agústsson, Stykkishólmi, og Helgi Benónýsson, Vestmanna- eyjum. Að lokinni kosningu nefnda, voru teknar til umræðu tillögur þær, er stjórnin lagði fyrir fund- inn, og hafði sent deildum sam- bandsins með fundarboðinu. Einnig var lýst nokkrum til- lögum frá deildum, eða einsök- um fulltrúum, sem mættir voru á íundinum. Var öllum þessum tillögum vísað til hinna ýmsu nefnda. Kl. 16,30 flutti íjármála- og sjávarútvegsmálaráðherra Jó- hann Þ. Jósefsson ýtarlegt erindi um ástand og horfur varðandi málefni sjávarútvegsins. Margir fundarmenn tóku til máls. Næsti fundur hófst kl. 10 ár- degis hinn 10. júlí. Flutti þá for- maður Innkaupsnefndar L. I. U. Ólafur B. Björnsson, ýtarlega skýrslu fyrir hönd stjórnar Inn- kaupsnefndarinnar, um starf- semina á árinu 1946, sem og um viðhorfið framundan. Nokkrar umræður urðu um Innkaupa- deildina, er allar lýstu áhuga fulltrúanna fyrir vexti og við- gangi þessa mikilvæga þáttar í starfsemi Landsambandsins. Eftirfarandi tillögur voru sam- þykktar á fundinum: 1. Með skýrskotum til sam- þykktar síðasta aðalfundar um það, að efla og styrkja allsherjar- samtök útvegsins í landinu á þann hátt, að sölumiðstöð Hrað- frystihúsanna og sölusamband íslenzkra fiskframleiðenda gerð- ust félagar Landsambandsins, beinir aðalfundur þeirri áskorun til nefndra stofnana, að taka hið allra fyrsta afstöðu til þessara óska. Sjái þessar stofnanir sér ekki fært að gerast beinir félagar Sambandsins, telur aðalfundur nauðsynlegt að þessir þrír aðilar L. í. Ú., S. í. F. og S. H. taki upp nánari samvinnu en verið hefur með því að fulltrúar þeirra eigi fund með sér mánaðarlega, svo hægt sé á hverjum tíma að STEFNIR ‘27

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1961

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.