Stefnir - 15.08.1947, Blaðsíða 24
Á útilegubáti skiptist til
heiminga, en þá skal vera lög-
skráður matsveinn, er fær einn
hlut er greiðist af óskiptum afla,
og auk þess 116,00 krónur á
mánuði auk dýrtíðaruppbótar,
sem útgerðarmaðurinn greiðir.
7. grein
Lifur skal mæld með göggildu
niáli að lokinni aðgerð í hvert
sinn.
8. grein
Vinni hásetar, matsveinn og
vélamenn að útbúnaði skips
í byrjun eða enduðum veiðitíma,
svo sem uppsetningu lóðar,
hreinsun og málningu skips-
botns, hreinsun skipa ofan þilja
og neðan, umfram venju. ber
útgerðarmanni að greiða slíka
vinnu samkvæmt gildandi
kauptöxtum, þar sem skipið á
heima eða þaðan sem skipið er
gert út, þó aldrei lægra en
þetta er á heimilisstað skips-
ins. Vélamenn hafi .25% hærra
dagkaup en hásetar og 25%
hærra í eftirvinnu nætur og
helgidagsvinnu. Fyrir ákvæðis-
vinnu við að beita bjóð úr bing
skal greiða kr. 6,50 auk verð-
lagsuppbótar.
9. grein
Landmenn séu lögskráðir.
10. grein
Leita skal samþykkis skip-
verja á sölu á fiski, sem út-
gerðarmenn kaupa sjálfir af
skipum sínum. Fiskkaupmenn
skulu afhenda landformanni
hvers skips nótu yfir innlagðan
aíla af útfylltu verði pr. kíló.
Bílstjórar skulu skyldir til að
láta landform. í té nótu að af-
loknu starfi bílsins í hvert sinn.
Beitusíld þá, sem útgerðarmenn
eiga veidda í Reykjavík og
Hafnarfirði eða annars staðar,
skal selja skipverjum á því verði,
er Beitunefnd ákveður og aug-
lýsir á hverjum tíma. Um beitu-
skurð til hvers báts skal einnig
hlíta ákvæðum Beitunefndar.
11. grein
Skipverjar eiga kröfu til land-
formanns, að hann sé fulltrúi
þeirra í samráði við skrifstofu
félaganna við uppgjör reikninga
og solu á afla, kaup á vistum og
öðrum tilkostnaði við útgerðina.
12. grein
Heimilt er að ráðningartími
skipshafnar sé frá skráningar-
degi til 1. maí 1947. Fari skip-
20
STEFNIR