Stefnir - 15.08.1947, Blaðsíða 42
félagsstarf og þann góða félags-
anda ,sem ríkti innan félags ís-
lenzkra botnvörpuskipaeigenda.
En auk þessa inikla félagslega
starfs, sem togaraeigendur hafa
lagt af mörkum í starfi Félags
íslenzkra botnvörpuskipaeig-
enda, hafa þeir einnig lagt mikið
starf fram í þágu starfsemi út-
vegsmanna í landinu í gegn um
Landsamband íslenzkra útvegs-
manna. Það er að sjálfsögðu
mikill fengur fvrir tiltölulega
ung félagssamtök, þegar slíkt
félag sem Félag íslenzkra botn-
vörpuskipaeigenda verður þar
þáttakandi, þar sem á bak við
þann félagsskap er margra ára
örugg og góð revnzla um félags-
legan þroska og hvílík nauðsyn
útvegsmönnum er á slíkri starf-
semi yfirleitt.
Frá því er félag íslenzkra
botnvörpuskipaeigenda hóf
starfsemi sína í landinu, hefur
það átt forgöngu um stofnun
ýmsra þeirra fyrirtækja, sem
beinlínis hafa haft veruleg áhrif
á hag og afkomu togaraútgerð-
arinnar í landinu. Má í þessu
sambandi minnast á samtrvgg-
ingu íslenzkra botnvörpunga,
sem stofnað var fyrir rúmlega
20 árum vegna m. a. forgöngu
ýmsra manna innan Félags ís-
lenzkra botnvörpuskipaeigenda,
svo og síðan Lýsissaml. íslenzkra
botnvörpunga.
Eins og að líkum lætur voru
sótt mörg ráð og góð til Félags
íslenzkra botnvörpuskipaeig-
enda þegar undirbúningur hófst
að nýsköpun togaraflotans, og
fulltrúar þess m. a. fengnir til
þess að undirbúa og ganga frá
sanmingum fyrir hönd rílcis-
stjórnarinnar um kaup á nýjum
botnvörpuskipum, þau eru nú
að koma til landsins hvert af
öðru, þessi nýju og fögru skip,
og þar með auka þau á styrk og
velgengni Félags íslenzkra botn-
vörpueigenda, sem átti mikinn
og drjúgan þátt í því hversu vel
þau eru úr garði gerð og til sóma
íslenzkri útgerð.
Félag íslenzkra botnvörpu-
skipaeigenda hóf á s. 1. ári veru-
legt starf um stofnun Olíusam-
lags íslenzkra botnvörpuskipa-
eigenda, en eins og kunnugt er
brenna hin nýju skip olíu tii
véla sinna, og því þótti það
mikið framf-aramál að dómi
ýmra félagsmanna, að íslenzkir
togaraeigendur kæmu sér saman
um stofnun Olíufélags íslenzkra
botnvörpunga, sem beitti sér
fyrir kaupum á brennsluolíu til
skipanna. Enda þótt að mál
38
STEFNIR