Stefnir - 15.08.1947, Blaðsíða 39
ardaginn var, komst Mr. Bootby svo að orði um verðlagseftirlit, að
sjómenn gætu ekki verið einráðir. Þeir gætu ekki heimtað ákveðið
verðlag hjá Herring Board, tryggt af ríkinu, og samtímis ekki þolað
utanaðkomandi afskiptasemi. Ef þeir óska eftir að hafa umsjá með
síldveiður sjálfir, án tillits til ráðsins, væri frjáls verzlun ómn-
flýjanleg.
„Eg get sagt yður“, sagði Mr. Bootby, „að matvælaráðherra
hefur hugleitt alvarlega þann möguleika, að útrýma öllum núver-
andi höftum, og láta verðlagið komast sjálfkrafa í eðlilegt horf.
Hann hefur útrýmt ýmsum höftum upp á síðkastið, með þeim for-
séndum. ef atvinnuvegurinn eigi að blómgvast, verði annað hvort
að hafa ríkisrekstur eða frjálsa samkeppni. Það er engin ástæða að
halda að þetta nái aðeins til síldarútgerðar. Samt sem áður er ég
algjörlega mótfallinn niðurfellingu allra hafta og verzlun á frjálsum
markaði. Eg hefi sagt ráðherranum, að samkvæmt mínu áliti mundi
það vera óheillavænlegt fyrir framtíðar skipulagningu útvegsins. I
bili — ef til vill í mjög skamman tíma — gæti verðið skrúfast hátt
upp, en fyrr eða síðar mundi koma kreppa, eins og á árunum milli
styrjaldanna. Glasgow Herald.
#
SLAKAÐ TIL Á REGLUM UM DREYFINGU FISKJAR
Matvælaráðherra hefur ákveðið að slaka enn til á höftum á dreyf-
ingu fiskjar. Frá næsta þriðjudegi að telja, munu þeir sem senda
umsóknir fá skírteini ,er heimila sölu á hvítfiski, ef þeir eiga hús-
næði og nauðsynleg tæki, í höfnum og á mörkuðum inn í landi.
Skírteinin munu gilda fyrst um sinn í sex mánuði.
The Times, London, 25. júní 1947.
TIL SÉRSTAKRAR ATHUGUNAR
1. Skýrsla neðri málstofunnar í London:
Endurskoðun á fiskverði í haust. Einnig rann-
sókn á fiskiveiðum við strendur Bretlands o. frv.
STEFNIR
35