Stefnir - 15.08.1947, Blaðsíða 22

Stefnir - 15.08.1947, Blaðsíða 22
Kanpgfaldsmá! SAMNINGUR um kau'p og hjör milli Sjórnannafélags Reykjavíkur og Sjómannafélags Hafnarfjarðar annars vegar og Landssambands íslenzkra útvegs- manna hins vegar. A skipum þeim, sem gerð eru út á þorskveiðar með lóð frá Hafnarfirði og Reykjavík. Tlvort heldur eru stór eða smá, og beita lóðir sínar í landi og koma daglega að með afla sinn, nema þar sem öðruvísi kann að vera ákveðið í samningi þessum sérstaklega um útilegubáta, en þar eru skip, þar sem lóðir eru beittar og gert að afla um borð í skipinu sjálfu. 1. grein Af óskiptum afla greiðist við- legugjald, olíur, salt, keypt beita, rafmagn til ljósa og upp- hitunar og annar upphitunar- kostnaður í verbúð, keypt vinna við keyrzlu á afla, aðgerð á afla, beitning lóða, kæling á beittum lóðum, keypt vinna við lóða- flækjur og umstöflun á sölt- uðum fiski í landi, ef hann hefur ekki verið seldur. Á útilegubát- um ís til viðhalds beitu. A hvorum stað, Hafnarfirði og Reykjavík, skal húsaleigunefnd meta viðlegupláss. 2. grein Utgerðarmaður leggur til veiðarfæri, kol til upphitunar og matreiðslu á sjó, matar- og matreiðsluáhöld á sjó og í landi, öll hafnargjöld og önnur gjöld, er á útgerðinni hvíla. Verði ágreiningur hvað teljist hafnar- gjöld í Reykjavík og Hafnafirði, skal úrskurðar hafnarstjóra leitað á hverjum stað. Þó skal greiðast af óskiptum afla bryggjugjald af fiski, sem losað- ur er í land og kranagjald við losun á afla bátsins, þar sem það er tekið. , 18 STEFNIR

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1961

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.