Stefnir - 15.08.1947, Blaðsíða 29
íslands. Vér lifum á tímum
vísindalegra rannsókna, skjótr-
ar þróunar breytilegra kring-
umstæðna. Island má nú ekki
gleyma þessu, og ekki heldur
hinu, að það hefur aðeins eitt
spil í hendinni — fiskinn.
Allt það sem skeður annars-
staðar (í sambandi við fiskiveið-
ar) verða menn að kynna sér —
þetta getur átt við nýjar vélar,
frábrugðin net, nýjar aðferðir við
botnvörpuveiðar, nýjar flutn-
ingsaðferðir, ný tæki og útbún-
að, nýjar gerðir skipa, nýjar að-
ferðir við geymslu, verkun, nið-
ursuðu eða frystingu á fiski, nýj-
ar aðferðir við nýtingu úrgangs-
efna, nýjar aðferðir við vinnslu á
lýsi og fjörefnum, jafnvel aðferð-
ir við veiðar nýrra teg. fiskja.
Með öllu slíku verða framleið-
endur að fylgjast nákvæmlega,
kynna sér og ræða. Það hefur
grundvallarþýðingu fyrir við-
hald, vöxt og viðgang þessa mik-
ilvæga atvinnuvegar íslendinga.
A þann veg geta þeir ef til vill
verið reiðubúnir að mæta hætt-
um þeim, sem áreiðanlega koma
á daginn og geta ekki verið langt
undan.
Island er ekki einasta fiski-
veiðalandið í heiminum; Island
er ekki það stærzta; ísland er
ekki það sterkasta í þessum efn-
um, en Island er eina landið sem
byggir alveg og eingöngu á sölu
fiskjar um allan heim. Þetta
verður að hafa yfir aftur og aft-
ur, og allir íslendingar verða
samviskusamlega að muna það.
Heimsmarkaðirnir eru að
breytast og þróast; íslénzki
sjávarútvegurinn verður að gera
það einnig ef hann á að geta
haldið áfram sem heilnæmur
þj óðaratvinnu vegur.
STEFNIR
25