Stefnir - 15.08.1947, Blaðsíða 25
verji úr skiprúmi innan þess
tíma, án gildra ástæðna, eða án
samþykkis meirihluta skips-
hafnar, hefur hann misst rétt
til kauptryggingar. Ennfremur
reiknast honum skiptakostnað-
ur til jafns við aðra skipverja
til vertíðarloks.
18. grein
Útgerðarmaður skuldbindur
sig til að hafa enga stubba eða
strengi, sem hlunnindi til eins
eða annars. Skipverjar njóti
lægsta verðs, sem völ er á, á öllu
til útgerðarinnar, sem skipverjar
greiða sameiginlega með út-
gerðarmanni. Einnig njóti þeir
þess verðs, er aflinn selst fyrir.
14. grein
A hverjum viðlegubát, er hef-
ur ráðskonu, greiða skipverjar,
sem hafa sameiginlegt mötu-
neyti í landi eða á sjó, kaup
ráðskonunnar.
15. grein
Hásetar, matsveinar og véla-
menn séu meðlimir Sjómanna-
féiags Reykjavíkur eða Sjó-
mannafélags Hafnarfjarðar eða
annara verkalýðsfélaga innan
Alþýðusambands Islands, er
veita gagnkvæm réttindi, enda
tryggir skipstjóri eða útgerðar-
maður að svo sé við lögskrán-
inguna í skiprúm. Útgerðar-
maður eða skipstjóri heldur eftir
af kaupi eða aflahlut skipverja
upphæð, er nemur ógreiddu ið-
gjaldi til stéttarfélags hans, ef
þess er óskað af íélaginu, og af-
hendir því þegar þess er krafist,
enda liggi krafan fyrir þegar
vertíð lýkur.
1G. grein \
Ef verkfall eða verkbann er
hjá einhverju félagi innan Al-
þýðusamb. íslands, skal félags-
mönnum þeirra stéttarfélaga, er
samningur þessi tekur til, ekki
skylt að vinna þau verk, sem
aðrir hafa hætt vinnu við vegna
verkfallsins eða verkbannsins.
Ekki er félagsmönnum hlutað-
eigandi félaga skylt að afgreiða
vörur og hverskonar varning til
þess staðar, þar sem verkfallið
er.
17. grein
Brot á samningi þessum varð-
ar sektum allt að kr. 1,000,00, er
rennur til vinnudeilusjóðs við-
komandi félags.
18. grein
Samningi þessum getur Iivor
sagt upp með 2ja mánaða fyrir-
STEFNIR
21