Stefnir - 15.08.1947, Blaðsíða 6
ct ef til vill gott fyrir lesendur ritsins að geta borið það á sér, án
þess að mikið fari fyrir því.
A undanförnum árum má segja, að ritnefnd Landssambands ísl.
útvegsmanna hafi haft aðgang að dagblöðum höfuðstaðarins, og er
rétt í því efni að minna á, að „Morgunblaðið“ hefur jafnan birt við
og við hina svokölluðu Landssambandssíðu, þar sem málefni út-
vegsmanna voru birt á þeirra ábyrgð. En reynzlan hefur sýnt og
sannað, að þetta var allt of þröngur stakkur fyrir áhugamál útvegs-
manna, enda vitað mál, að margir aðilar sækja að blöðunum, og því
ekki ætíð kostur þess að fá greinar birtar á þeim tíma, sem þess er
mest þörf. Óskar ritnefnd L. I. Ú. — eftir sem áiður — að fá rúm
hjá landsmálablöðunum, sérstaklega um þau málefni útvegsins, er
almenning varðar mest á hverjum tíma.
Til þess að gera útvegsmönnum og lesendum þessa rits nokkurn
veginn Ijósa grein fyrir, hvert sé efni þess og áform, er rétt að taka
þetta fram:
1. Ritið á að gera grein fyrir stefnu og viðhorfi í útvegsmálum
á hverjum tíma.
2. Það á að skýra frá félagslegum málefnum Landssambandsins
og útvegsmannafélaganna.
3. Það á að skýra frá málefnum Félags íslenzkra botnvörpu-
skipaeigenda og starfsemi íslenzka togaraflotans.
/h Það á að birta félagatal Landssambandsins.
5. Það á að birta aflaskýrslur og fréttir frá útvegsmannafélög-
unum hvarvetna á landinu.
6. Það á að flytja erlendar og innlendar fréttir um nýjungar í
fiskiðnaði og nýtingu sjávarafurða, veiðiaðferða og fiskiskipa-
bygginga og allt það, er verða má íslenzkum útvegi til gagns.
7. Það á að birta kaup- og kjarasamninga og skýra frá setningu
nýrra laga eða reglugerða, er varða liagsmuni útvegsins.
2
STEFNIK