Stefnir - 15.08.1947, Síða 11

Stefnir - 15.08.1947, Síða 11
koma á leið verkefnum sem ann- ars yrðu óleyst. Þessi samtök eru ung að árum og reynzlu. Þó hafa þau þegar sannað tilverurétt sinn, á ýmsa vegu. innávið gagnvart hinum cireifðu félagsmönnum, og útá- við á ýmsa vegu. Það er forráða- mönnum þessara samtaka mikið gieðiefni að geta lýst því yfir, að ráðandi ríkisstjórnir hafa hverju sinni á ýmsa vegu sýnt þessum samtökum mikið traust og hollustu. Enda hefur allt ver- ið gert til að verðskulda það traust og tryggja sem nánast og eðlilegast samstarf. Hér verður það því eins og oft áður, að líf og lán þessara sam- taka eiga rót sína og rétt upp- tök í hinum mörgu einstakling- um, þegnskap þeirra og þrótti. Ef þeir gera skyldu sína í þessu efni á hverjum tíma, eiga sam- tökin í heild glæsilega framtíð fyrir höndum. Afkoman. Þrátt fyrir einmunatíð og yfirleitt góðan afla, má segja, að mikil óvissa ríkir um endan- lega afkomu, þar sem mikill hluti saltfiskframleiðslunnar er enn óseldur, og sala og afhend- ing verulegs hluta hraðfrysta fisksins er undir veiði og vinnzlu síldarinnar komið. Það er því ýmislegt vafasamt gagnvart af- komu yfirstandandi árs, þrátt fyrir, — eftir atvikum — mjög góða samninga um afurðaverð- ið. Síldveiðarnar. Þegar þetta er ritað, má segja að fullvíst sé, að enn ætli þessi vertíð að bregðast gjörsamlega. Það er því ekki aðeins alvarlegt mál fyrir hina einstöku útvegs- menn, heldur verulegt áfall og afdrifaríkt fyrir ríkið í heild. Verður það sjálfsagt ýmsuin alvarlegt umhugsunarefni hvern- ig komast eigi yfir þann vanda, sem þessi þriðja síldarvertíð veldur. Afurðasala um allan heim. Ef hin íslenzka þjóð á ekki að draga mikið í land, að því er varðar lífsvenjur og kröfur síð- ustu ára, verður henni nú að skiljast, að hún þarf að bvggja alla þá möguleika á ísl. fram- leiðslu og sölu þeirra á erlendum vettvangi. Hún veit, að þar er- um við ekki einir um, og að þar er fyrir höndum mikið verk að vinna. Þar þarf til góða menn, mikið fé, og skilning á þeirri megin nauðsyn umfram allt. STEFNIR 7

x

Stefnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1961

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.