Stefnir - 15.08.1947, Side 19

Stefnir - 15.08.1947, Side 19
að útflutningur geti verið arð- bærari starfsemi en innfiutning- ur og er ekki ástæða til að óttast að vér höfum ekki nóg af hæfum dugnaðarmönnum, sem vildu og * myndu af sjálfsdáðum vinna að sölu innlendra afurða, ef svo yrði gert. f Vér stöndum nú á tíma- mótum í utanríkisviðskiptum. I stað þess að vera fyrst og fremst kaupendur verðum vér fvrst og fremst seijendur. Fram- Vegis verður útflutningurinn aðalatriðið, raunverulegt þjóðar- markmið. Fram til síðustu ára var framleiðslan megin vanda- mál þjóðarinnar. En hin aukna framleiðslugeta, skjóta og stór- brotna tæknisþróun síðustu tíma hefir breytt aðstöðunni á þá lund að framleiðslan er ekki lengur vandamál númer eitt, heldur salan. Verndun fram- leiðslunnar og sala hennar á er- lendum mörkuðum er nú megin viðfangsefnið framundan. — ► Lausn þess er margþætt. Sumt ráðum við við, en annað ekki. Við getum ráðið gerð, gæðum og verðlagi framleiðslunnar og sölutækni vorri en vér getum ekki haft áhrif á pólitískt og og fjárhagslegt ástand markaðs- landanna. Hvað snertir gerð, gæði og frá- gang framleiðslunnar stöndum vér ekki lakar en keppinautarn- ir. En í því efni gætum vér aldrei sætt oss við minna en að standa framar öðrum. Núverandi verð- lag gerir framleiðsluna óseljan- lega fyrir kostnaðarverð og stöndum vér því þar svo höllum fæti að eigi má tæpara standa. Það fá útvegsmenn eigi einir við ráðið, þar verður að koma til kasta alþjóðar, þeirra er að hafa á hendi forustu um að knýja fram lausn þess máls. Hvað snertir sölutækni vora er mikið verkefni óleyst, sem vér getum leyst og á að leysast undir forystu útvegsmanna. I hinni hörðu samkeppni eftir- stríðsáranna og útflutningsátaki forystuþjóðanna í viðskiptum hefir verið beitt sérstakri markaðstækni, þ. e. vísindalega skipulögðum markaðsrannsókn- um með meiri krafti og betri árangri en áður. Með öðrum þjóðum eru víða starfandi stofnanir, sem hafa með höndum það verkefni að rannsaka vísindalega markaðs- möguleika viðkomandi þjóða. Megin verkefni markaðsrann- sóknanna er að safna saman og afla upplýsinga um markaðs- STEFNIR 15

x

Stefnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1961

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.