Stefnir - 15.08.1947, Síða 21
að berast, um styrkleika hennar
og veilur og bendingar um á
hvern hátt bezt verði sigrast á
samkeppninni. Við verðum jöfn-
um höndum að fylgjast á vak-
andi hátt með framleiðsluháttum
og markaðsmálum þeirra þjóða,
sem vér keppum við um markað-
ina. Vér verðum á hverjum tíma
að vita um aflabrögð þeirra, í
hvaða formi aflinn er boðinn,
verð og gæði. Vér þurfum einnig
að vita um framleiðslutækni
þeirra, vélar, verkfæri og vinnu-
brögð.
Þá ættu markaðsrannsókn-
irnar að afla sýnishorna af fram-
leiðsluvörum keppinautanna
nýjungum í framleiðslu, umbúð-
um o. s. frv. til stöðugs lífræns
samanburðar.
Framhald.
FRÉTTIE
Stjórn L. í. Ú. hefur ákveðið
að seta á fót skrifstofu í London.
Hefur Geir H. Zoega kaupmaður
verið ráðinn til að veita skrif-
stofunni forstöðu. Verður síðar
skýrt frá hvar hún muni hafa
aðsetur í London og hvert verk-
efni skrifstofunnar muni vera.
Þessi „nýsköpunarskip“ eru
þegar komin til landsins:
1. Ingólur Arnarson.
Eig.: Bæjarútgerð R.víkur.
2. Helgafell.
Eig.: Helgafell H.f. R.vík.
3. Kaldbakur.
Eig.: Utgerðarfél. Akureyr.
5. Egill Skallagrímsson
Eig.: Kveldúlfur H.f. R.vík.
6. Egill Rauði.
Eig.: Bæjarútg. Neskaupst.
7. Bjarni Ólafsson.
Eig.: Akraneskaupstaður
8. Akurey.
Eig.: Akurey H.f.
Auk þess hafa verið keyptir til
landsins eftirtaldir 3 togarar,
byggðir rétt fyrir stríð í Þýska-
landi: Gylfi B.A. 77 og Vörður
B.A. 142, eign O. Jóhannessonar
& Co., Patreksfirði og Kári R.E.
195, eign Alliance H.f. R.vík.
STEFNIR
17