Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1955, Blaðsíða 7

Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1955, Blaðsíða 7
fyrirtækja, sem tengd eru styrjald- arundirbúningi að miklum mun. Þannig leit þetta út í Vestur-Þýzka- landi: 31. jan. 31. marz Siemens (rafm.) 243 298 AEG 181 238 Demag (þunga iðn.). 297 330 Wintershall (olía) 218 270 En við undirskrift austurrísku frið- arsamninganna féllu verðbréf á kauphöllinni í New York verulega í fyrirtækjum í flugvélaiðnaði, stál- og efnaiðnaði. Hlutabréf í Du Pont de Nemours féllu um 4,5 stig, Betlehem Steel um 4,5, Douglas Aircraft 2,5 og Kenecott opper um 2,5 stig. ★ 4. þing Austur-þýzka verkalýðs- HERBERT WARNKE /---------------------------------- VINNAN og verkalýðurinn Afgreiðsla og ritstjórn Tjarnargötu 20. Sími 81077. k----------------------------------' sambandsins, FDGB, var haldið í Ber- lín dagana 15.—20. júní s.l. Þingið sátu um fjögur þúsund fulltrúar og gestir, þar á meðal nokkur hundruð verkamanna frá Vestur-Þýzkalandi. Á þinginu mætti einnig sendinefnd frá Alþjóðasambandi verkalýðsfélag - anna, WFTU, undir forystu aðalrit- ara þess, Louis Sadlllant. Jafnhliða umræðum um uppbygg- ingu þýzka alþýðulýðveldisins. DDR, og hagsmunamál verkalýðsins í því sambandi, beindust umræður þings- ins mjög að sameiningu Þýzkalands í eitt lýðræðisríki. í framsöguræðu sinni bar forseíi sambandsins, Herbert Warnke, fram mjög athyglisverða tillögu um sam- einingu landsins. Hann lagði til að verkalýðssamböndin í báðum lands- hlutum veldu sér fulltrúa til að ræða sameiginlega ályktun um baráttu gegn hringavaldinu og áformum vestur-þýzku hernaðarsinnanna um endurreisn þýzka nazismans og hern- aðarandans. Þessi sameiginlega álykt- un yrði síðan lögð fyrir hernámsveld- in 4. Að fundir yrðu haldnir í öllum verkalýðsfélögum beggja landshluta, til að ræða um hvernig hið samein- aða þýzka ríki ætti að vera og leiðir til sameiningar. Forsetinn hvatti eindregið til nán- ara samstarfs sambandanna og ein- stakra verkalýðsfélaga, sameiginlegra umræðna um hagsmunamálin og skiptingu á sendinefndum. VINNAN og verkalýðurinn 133

x

Vinnan og verkalýðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.