Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1955, Blaðsíða 18
Ásgeir Norðdahl verka-
maður Reykjalundi í
Mosfellssveit er sonur
Elliða Guðmundssonar
bróður Skúla Norðdahl
á Úlfarsfelli og Eggerts
á Hólmi sem fjölmargir
kannast við. Ásgeir er
vel að sér gjör um
marga hluti eins og
hann á kyn til. Hann er
sjálfmenntaður vel og
fróður, vakandi fyrir
framvindu heimsmála,
en stendur föstum fót-
um í íslenzkum jarð-
vegi. Hann er ekki fljót-
tekinn, eins og það er
kal'að, en getur verið
skemmtilegur viðmælis
og orðhagur vel. Hann
er einn þeirra, sem
vinna við kynningu.
Fáir munu í daglegu
tali hafa tamið sér betra
íslenzkt mál en hann.
Má segja, að nú, þegar
margvíslegar hættur
steðja að sjálfstæði
voru, séu slíkir menn
þjóð sinni þarfari en
fólk almennt gerir sér
ljóst, í fljófu bragði.
Eins og að líkum læt-
ur um svo vel gefinn
alþýðumann hefur Ás-
geir jafnan verið traust-
ur og öruggur talsmað-
ur verkalýðssamtaka.
Hann mun hafa verið
einn af helztu hvata-
mönnum stofnunar
Verkalýðsfélagsins Esju
og var formaður félags-
ins um skeið.
Ásgeir var fimmtugur 2.
júní s.l
★
Ingibjörg Jónsdóttir
er borin og barnfædd í
i Garði á Suðurnesjum.
Hún fluttist til Reykja-
víkur ung stúlka og
stofnaði síðar með
manni sínum, Sigurði
Eyjólfssyni, heimili að
Litlu-Brekku á Gríms-
staðaholti, þar sem hún
býr enn. Hún missti
mann sinn eftir stutta
sambúð frá mörgum
börnum ungum. — Það
er út af fyrir sig efni
í mikla sögu að lýsa þvi
afreki einstæðrar móð-
ur að koma til manns
hópi barna af þeirri
prýði sem hér mætti
greina dæmi um, en
það mun ekki reynt í
þessum línum. ■—■ Hitt
er þó vert þess að
minnst sé, að mitt í önn
harðar lífsbaráttu átti
ekkjan í Litlu-Brekku
ótrúlega marga yfir-
vinnustund, sem hún
gat fórnað félagslegri
menningu og hagsmun-
um alþýðunnar. Og víst
er um það, að þegar
rakin verður þáttur
kvennanna frá þeim
tíma, er róttæk verka-
lýðssamtök voru í sköp-
un í höfuðstað landsins,
mun nafni þessarar
konu ekki gleymt. Eða
hvort munu ekki ýmsir,
sem þá voru ungir á
Grímsstaðaholti og ný-
vaknaðir til virkrar
þátttöku í verkalýðs-
baráttunni, -—- minnast
kynna sinna af baráttu-
i 44
VINNAN ng verkalýðurinn