Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1955, Blaðsíða 10
Verkalýðssamtök-
in mótmæia
Fyrir skömmu gaf stjórn Alþýðxi-
sambands íslands út boðskap til allra
sambandsfélaga þar sem mótmælt er
þeirri skefjalausu verðhækkunar-
stefnu sem nú er rekin í skjóli nú-
verandi ríkisstjórnar, á þeirri fölsku
forsendu, að launabætur þær, er
fengust í kaupdeilunum s.l. vor, hafi
gert slíkar verðhækkanir nauðsyn-
legar. Jafnframt hvetur sambands-
stjórn verkalýðsfélögin og einstakh
inga að svara hinum ósvífnu blekk-
ingaráróðri stjórnarmálgagnanna
með þyí, að taka þessi mál til með-
ferðar á fundum félaga og á vinnu-
stöðvum. — Fer ávarp sambands-
stjórna-r hér á eftir:
„Alþýðusamband íslands mótmælir
harðlega þeim staðlausa áróðri, að
þær gífurlegu verðhækkanir, sem nú
eru tilkynntar daglega, standi í
nokkru sambandi við þá 10% kaup-
hækkun, sem fékkst með lausn verk-
fallsins í vor.
í ýmsum tilfellum nemur hin aug-
Iýsta verðhækkun 20—30%, en vinnu-
laun flestra fyrirtækja eru aðeins
lítill hluti af samanlögðum reksturs-
kostnaði þeirra. Lætur því nærri, að
2—3% verðhækkun gæti orðið rétt-
mæt afleiðing af 10% kauphækkun,
en hitt má fullyrða, að 10% verð-
hækkun eða meira er að langmestu
leyti af allt öðrum rótum runnin.
Miðstjórn Alþýðusambandsins
hvetur öll sambandsfélög og allt t'é-
Iagsbundið verkafólk til að taka þessi
mál til umræðu á fundum og á vinnu-
stöðvunum um land allt og' mæta
þannig hinum ósvífna áróðri stjórnar-
blaðanna.
ræna ávöxtum launabaráttu verkalýðsins s.l. vor með óþörfum verð ■
hækkunum og knésetja neytendasamtök alþýðunnar, mun svar verka-
lýðsins ekki verða út í hött: Hann mun vissulega beita samtakaafli
sínu að því marki að losa sig við ríkisvald hverskonar kaupræningja.
En hann mun á líðandi stundu ekki láta undir höfuð leggjast að
bregða því vopni, sem hann hefur þegar í hendi sér og hvetja það
sem mest má verða, í stað þess að láta slá það úr hendi sér. Hann
mun sem heild, án tillits til mismunandi stjórnmálaskoðana og sjálf-
um sér samkvæmur fylgja eftir starfi sínu og baráttu í verkalýðsfé-
lögunum með alhliða eflingu neytendasamtaka sinna, í fullum skiln-
ingi á því, að einmitt þau við hlið verkalýðsfélaganna eru einn þýð-
ingarmesti vettvangur hagsmunabaráttunnar. Þess vegna mun verka-
lýður Reykjavíkur og öll alþýða sameinast um það að rétta við þegar
í stað, það sem hallaðist á s.l. ári í þessari baráttu og hefja KRON
aftur til meiri vegs á sínu sviði en nokkru sinni áður. Þetta er ein nær-
tækasta, og raunhæfasta dýrtíðarráðstöfun verkalýðs höfuðstaðarins,
nú í svipinn.
136
VINNAN og verkalýðurinn