Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1955, Blaðsíða 19
konunni góðu í Litlu-
Brekku, konunni sí-
vökulu, sem aldrei vék
af verðinum fyrir mál-
stað stéttar sinnar,
hvorki heima né heim-
an. — Hér skal ekki
orðlengt. En þeir verka-
menn, sem enn eru ung-
ir og ekki vita frekar
deili á umræddri konu,
mega gjarnan vita, að
þar fer móðir Eðvarðs
Sigurðssonar ritara
Dagsbrúnar. Þar í er
fólginn hluti af fram-
lagi hennar til íslenzkr-
ar verkalýðsbaráttu, og
mun mörgum finnast
skerfur sá nokkurs virði.
Ingibjörg á 7 upp-
komin myndarbörn og
15 barnabörn. Hún varð
70 ára 27. júlí s.l.
★
Jón Rafnsson verka-
maður, Skólavörðuholti
4 Reykjavík varð sjö-
tugur 4. júlí s.l. Jón er
fæddur og uppalinn að
Hvalnesi á Skaga í
Skagaíjarðarsýslu, son-
ur Rafns J. Símonarson-
ar og Elínar Andrés-
dóttur. Ættir hans
liggja um Skagafjörð og
víðar um Norðurland.
„Mín vopn hafa ætíð
verið hakinn og skófl-
an“, sagði Jón og sló svo
út í aðra sálma. — En
einmitt í þessu stutta
svari fólst táknræn
mannlýsing, sannari og
rismeiri en til var
ætlazt. Það er vissulega
tvennt, að halda á haka
og skóflu: sinna verki,
svo talað sé bert. í
höndum Jóns hafa „hak-
inn og skóflan“ verið
hin mestu kjörvopn.
Hann hefur jafnan
fengið orð fyrir að vera
mikill dugnaðar- og
ejljumaður og tveggja
manna maki að hverju
starfi sem hann gekk.
Og enn eru starfskraft-
ar hans frábærir. Þetta
á ekki sína megin skýr-
ingu í óvenjulega
traustri líkamsbyggingu
og hreysti, heldur
einnig og kannski eink-
um í viðhorfi hans al-
mennt til starfsins og
lífsins. Þetta er engum
ljósara en þeim, sem
bezt þekkja hæfileika
Jóns og vita að fleiri
vopn hefðu getað farið
vel í hendi hans en hak-
inn og skóflan. En það
er saga fyrir isig. —
Hvenær kemur sú tíð,
með þjóð vorri, að
vopnabræður þessa
manns, þeir, sem verð-
mætin skapa, verði
metnir eins og þeim
ber?
Kona Jóns er Hróðný
Jónsdóttir, ættuð úr
Borgarfjarðarsýslu. Þau
eiga fjögur uppkomin
börn, öll gift, nema
yngsti sonur þeirra.
-k
Svona var Þárarinn Fmns-
son fertugur.
Þórarinn Finnsson inn-
heimtumaður, Vesturg.
3, varð 75 ára 9. maí í
vor s 1. Hann er fæddur
að Tunguhóli í Fá-
skrúðsfirði 9. maí, 1880,
sonur hjónanna Finns
Guðmundssonar og
Kristínar Þórarinsdótt-
ur. Þórarinn stundaði
sjó í flestum helztu
VINNAN og verkalýðurinn
145