Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1955, Qupperneq 8

Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1955, Qupperneq 8
Sameinumst gegn dýrtíðinni Á meðan vinnandi fólk verður að lúta ríkisvaldi, sem þjónar hags- munum auðstéttarinnar og völdin hafa þeir, sem hagnast á að selja því nauðsynjavörur með sem mestri álagningu annarsvegar og kaupa vinnuafl þess hins vegar með sem lægstu verði, þá hlýtur verkafólkið að beina stéttarsamtökum sínum jöfnum höndum gegn hvoru tveggju. Annað væri í fyllsta máta óeðlilegt. — Þegar verzlunarauðvaldið og ríkistæki þess hafa spennt boga verðskrúfunnar svo að verkafólki er ekki lengur lífvænlegt af óbreyttu kaupi er ekki önnur leið til bjargar en kauphækkunarleiðin og hún er að sjálfsögðu valin. Svo notar auðstéttin þessa launabót, þótt eðlileg sé og bein af- leiðing fyrri verðhækkana, fyrir átyllu til nýrra og óréttmætra verð hækkana og nýtur í því ýmist vinsamlegs hlutleysis eða stuðnings ríkisstjórna sinna. Þetta er gömul og margendurtekin saga, sem allir kannast við. Þetta er einmitt það, sem nú gerist meðal vor. Við þessar þjóðfélagsaðstæður er ný krafa um kauphækkun í fyllsta máta réttlætanleg og eðlileg. En gagnráðstafanir verkalýðsins eru fleiri: hann færir út kvíar sinnar stéttarlegu hagsmunabaráttu yfir á verzlunarsviðið, stofnar sín eigin neytendafélög til að tryggja sér kaup á nauðsynjavörum með þeirri álagningu sem minnst er hægt að komast af með. Með þessum samtökum tryggir hann sér hverju sinni það lægsta verð, sem mögulegt er. Og með þessu er gerð ráð- stöfun, sem getur haft ómetanleg áhrif í verzlunarmálunum almennt: Ef hann fjölmennir í þessi verzlunarsamtök sín eins og t. d. í verka- lýðsfélögin og leggur við þau alúð geta þau orðið þess megnug að halda niðri verðlagi almennt, til ómetanlegs gagns fyrir allan fjöldan og orðið ómetanlegt vopn í baráttunni gegn dýrtíðinni. Og á þessu sviði eru þau þeim mun áhrifameiri sem alþýðan stendur fastar og almennar saman um þau. — Kaupfélög alþýðunnar eru rökrétt fylgi- ráðstöfun þess að starfrækja verkalýðsfélög, þau eru eitt þýðingar- mesta vopn verkalýðsins til að verja og drýgja árangur verkalýðs- félaganna í kaupgjaldsbaráttunni. Verkamaður, sem skilur nauðsyn þess að hafa verkalýðsfélag en sér ekki hina mikilvægu þýðingu stétt- arlegra verzlunarsamtaka þ. e. kaupfélagsins er sjálfum sér ósam- kvæmur, hann glatar með annri hendinni því sem hann aflar með hinni. Til að sannfærast um mikilvægi eigin verzlunarsamtaka þarf verkamaðurinn ekki annað en að gefa því gætur hvaða hugarþel stétt- arandstæðingurinn ber til þeirra. Allir, sem til þekkja, vita að saga 134 VINNAN og verkalýðurinn

x

Vinnan og verkalýðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.