Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1955, Qupperneq 12

Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1955, Qupperneq 12
bjóða sér til lengdar þá taumlausu fé fiettingarpólitík, sem núverandi rík- i.'istjórn heldur verndarhendi sinni yfir og rekur sjálf gagnvart launa- stéttum landsins og lífæð atvinnu- lífsins. Verkalýðssamtökin bregðast hlut verki sínu og skyldum, ef þau halda að sér höndum og hafast ekki að, meðan lífskjörin eru brotin niður aí óprúttnum kaupahéðnum, sem treysta því, að sér leyfist allt, þar sem þeir hafi ríkisvaldið að öruggum bak- hjarli. Verkalýðssamtökin hafa einu sinni knúið ríkisvaldið til nokkurra verð- lækkana. Við þá sátfagjörð var illa staðið. Og í upphafi verkfallsins í vor tiikynnti ríkisstjórnin, að hún gæti engar verðlækkunarráðstafanir gert. Þá var aðeins um tvennt að velja: Ofið á vefgrind. Að þola kjaraskerðingu liðinna ára bótalaust og hafast ekki að. Eða knýja fram nýjar skiptareglur í þjóð- félaginu með hækkuðu kaupi og augnu öryggi, ef afvinnuleysi bæri að höndum. Þetta síðasta var gert. Og það var eina færa leiðin eins og á stóð. Nú er að gæta sigursins. Með ákveðnum og róttækum aðgerðum gegn verðhækk- unum og vaxandi dýrtíð getur ríkis- stjórnin haldið uppi gengi krónunnar og varðveitt vinnufrið í landinu. En ef hún kýs heldur að þjóna bröskurunum og veita þeim fullt frelsi til að féfletta almenning, kostar það nýtt dýrtíðarflóð, hrörnun at- vinnulífsins fall krónunnar og stríð við alþýðusamtökin í landinu. Alþýðusamband íslands“. Að Reykjalundi er nú að verða all reisulegt að líta. Auk hinnar miklu aðalbyggingar og smáhúsa vistmann- anna eru nú risnir af grunni og komn- ir í nofkun tveir miklir vinnuskálar, En hér skal þó ekki látið staðar numið. Er nú unnið að smíði tveggja hæða byggingar 60 metra langrar. Þar munu verða m. a. þvottahús, slraustofur, kennslustofur fyrir iðn- nám vistmanna, verzlun, vinnustofur. íbúðir starfsfólks o. fl. -— Verið er þegar að steypa þennan hluta bygg- ingarinnar. — Þá tekur við grunnur að stórri byggingu. í henni skal vera birgðaskemma fyrir fullunna vöru, skrifstofur og fundarherbergi fyrir heimilisstjórn, kvikmyndasalur o. s. frv. — Er bygging sú, sem nú er í smíðum áföst aðalbyggingunni og á að tengja hana vinnuskálunum, þannig að innangengt verði þar í milli. 138 VINNAN og verkalýðurinn

x

Vinnan og verkalýðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.