Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1955, Blaðsíða 22

Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1955, Blaðsíða 22
lag milli þeirra allra, áður en hægt er að framkvæma algera vinnu- stöðvun hjá þeim vinnustað. Hins- vegar er minna um óvirka með- limi því sá verkamaður sem geng- ur í verkalýðsfélag gerir það af áhuga og skilningi á verkalýðs- baráttunni. Dagana 12.—17. júní s 1. hélt CGT 30. þing sitt og var það hald- ið í geysistórum sýningarskála, við Porte de Versailles, í París. Þingið sátu nær 2500 fulltrúar, bæði úr heimalandinu og nýlendunum, og fjöldi gesta. Meðal gesta þingsins var sendinefnd frá Alþjóðasam bandinu, WFTU, undir forystu að- alritara þess, Louis Saillant, full- trúar frá Sovétríkjunum og öðrum alþýðuríkjum, Ítalíu, Kanada, Belgíu, Viet Nam, Luxemburg, ís- landi og víðar. Þá var og gestur þingsins Bryn Roberts aðalritari landssambands opinberra starfs- manna í Englandi. Fluttu allar sendinefndirnar þinginu kveðjur og færðu því gjafir. Skýrslu framkvædanefndai'inn- ar flutti annar aðalritari sam- bandsins, Benoit Frachon. Rakti hann hina hörðu kjarabaráttu franska verkalýðsins á undanförn um árum, sem að vísu hefði fært honum marga sigra, en þó ekki nóg til að hindra kjararýrnun. Þannig að kjör hans nú væru ekki eins góð og þau hefðu verið á tímum ,,Alþýðufylkingarinnar “ Áhrif CGT meðal verkalýðsins hefðu vaxið að mun, og nefndi í því sambandi tölur er sýna að áhrif þess eru miklu meiri en meðlimatalan gefur til kynna. Eini möguleikinn til að tryggja árang- ursríka sókn verkalýðsins væri ef takast mætti að skapa einingu hans í hagsmunabaráttunni. Lagði hann fram tillögur fram- kvæmdanefndarinnar að bréfi til hinna sambandanna, þar sem skorað er á þau að taka upp nána samvinnu við CGT, um hagsmuna- málin, og jafnframt skorað á FO, samband hægri kratanna, að taka upp umræður um sameiningu sam- *----, Cíllgl CGT. I ft*tnri röð íulltr. Ki a Sov_ étríkjaniRj ann_ ari röð i miðri myndinií sjást Magnús iijarnas. og BjörnÖjamas. bandanna á ný. Þessi tillaga var samþykkt einróma og bréfið sent til sambandanna, samdægurs. Að lokum lagði Frachon fram tillög- ur framkvæmdanefndar að ,,Bar- áttustefnuskrá". Leggur hún höf- uðáherzlu á miskunnarlausa kjara- baráttu og einingu verkalýðsins i þeirri baráttu. Umræður þingsins snerust að mestu um hana og var glf ■; Ml . ’^'jÉÉKSÍ^P'SH * ■: • s’f-Æ&í-: -** Mae hún einróma samþykkt í þinglok- in. Það var ekki um villst að tillaga þingsins um samvinnu og samein- ingu sambandanna átti sér sterk- an hljómgrunn í hugum franska verkalýðsins. Næstu daga kom hver sendinefndin af annarri af vinnustöðum í París og nágrenni í heimsókn á þingið, til að lýsa yfir fylgi sínu við þessa tillögu og til að votta CGT traust, sem forystu- liðs franska verkalýðsins. I þess- um sendinefndum voru meðlimir allra sambandanna er einhuga tjáðu þinginu heitustu ósk verka- lýðsins, eininguna í hagsmuna- baráttunni Verkamenn í fjarlæg- um landshlutum tjáðu einnig vilja sinn í sömu átt, með fundarsam- þykktum og skeytasendingum til þingsins. Þingið samþykkti fjölda álykt- ana í hagsmuna- og menningar- málum verkalýðsins. Þá fordæmdi það harðlega framkomu stjórnar- valdanna gegn verkalýð frönsku lýlendnanna, þá miskunnarlausu kúgun sem beitt er gegn þeim og hvatti allan verkalýð að sína sam- stöðu sína með þeim í verki. Það, sem einkenndi þetta þing framar öllu öðru var óbilandi bar- áttukjarkur og örugg vissa um mátt einingarinnar. Gestir þingsins nutu framúr- skarandi gestrisni og var allt gert til þess að gera þeim dvölina sem ánægjulegasta. Skemmtiferðir voru farnar um borgina, meðal annars um alla minnisverðustu staði úr byltingunni, einnig var farinn tveggja daga skemmtiferð um norður Frakkland. 148 VINNAN og verkalýðurinn VINNAN og verkalýBurinn 149

x

Vinnan og verkalýðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.