Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1955, Blaðsíða 27

Vinnan og verkalýðurinn - 15.09.1955, Blaðsíða 27
Funtlur aeðstu manna fjórveld- anna í Genf nú fyrir skömmu hefir markað heillavænleg tíma- mót í heimsmálum. í kjölfar hans hafa siglt fleiri fundir er góðu spá, og þegar hafa Sovétríkin og alþýðulýðveldin svo sem eins og Tékkóslóvakíu tekið frumkvæði um samdrátt hers og afvopnun. — Kröfur Shyngman Rhees í SuÖur Kóreu um landsafsal og hótanir í garff N. Kóreu og vopna hlésnefndarinnar þótti því ugg- vænlegur falstónn í alheimskór- inu um friff. Sem betur fer standa vonir til að takast megi aff kæfa þennan óíriðarneista. Myndin: Hermenn úr Kóreustríðinu. lega meðal stúlknanna, en allir voru hinir rólegustu. Þeir sem hafa tekið inn pillur gegn ótta eru auðvitað ekki VINNAN og vrrkalviíin inn vitund smeikir við fáeina apa! En Hólm forstjóri og Thomsen verkstjóri hríðskulfu af angist. Ætli að hanr. Hólm hafi þá ekki iðrast þess að hafa ekki brotið boðorð sitt um að bragða aldrei sjálfur pillur sem hann lét búa til? — Farðu burt með þessar ófreskj- ur, æpti Thomsen og sneri sér að mér. — Hvern þeirra á ég að fara með? spurði ég og leit á vígsl á þá Thomsen og Hólm forstjóra. Mér sýndist ekki betur en að hann Herkúles minn væri örlítið glettnislegur til augnanna. —- Þú skalt ekkert vera að flýta þér að því — sagði forsvarsmaður hópsins við mig. Síðan sneri harm sér að Hólm forstjóra. — Það er bezt að yður skiljist það herra forstjóri að nú erum við allir sloppnir út úr búrunum. — Nú heimtum við refja- laus svör og krefjumst að fá leiðrétt allt það ranglæti, sem við árum sam- an höfum orðið við að búa. — Ræða þessi fékk feiknagóðar undirtektir hjá öllum hópnum og sönnuðu undirtektirnar að allir stóðu með málsvara okkar. Og þegar Herkúles tók að fikta við vestistöl- urnar á forstjóranum æpti forstjór- inn: -—- Jæja — ég læt undan, en þá verðið þið að losa mig við þessi dýr. — Úr því að þér takið svo skynsam- lega á málinu skal ekki standa á samkomulagi okkar — sagði talsmað- ur okkar og gaf mér bendingu. -— Eg hentist niður í kjallara eftir ávöxt- um sem ég geymdi þar og þegar ég kom upp aftur tókst mér strax að fá dýrin til að elta mig, því auk þess sem þeim þótti mikið varið í vinsam- legar viðræður, þóttu þeim bananar samt ennþá betri. — Fólk var í hátíðaskapi það sem eftir var dagsins. Að loknu dagsverki 158

x

Vinnan og verkalýðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.