Bergmál - 01.04.1954, Blaðsíða 22
B E R G M Á L
Apríl
Enska kvikmyndaleikkonan Sally
Gray er 35 ára. Hún komst inn í kvik-
myndaheiminn er Fred Astaire fékk
henni smáhlutverk í hinu fræga dans-
leikriti „The Gay Divorce". Hún þykir
góð leikkona, en einna mesta frægð
hefir hún getið sér fyrir leik sinn í
kvikmyndinni „Hættulegt tunglsljós".
í þessari andrá var hringt dyra-
bjöllunni, og er ég leit upp, sá ég að
Andersonsfjölskyldan kom inn í and-
dyrið. Foreldrar Glenns og hann sjálf-
pr í fylgd með þeim. Ég hafði hringt
til þeirr;a fy.rr um daginn og sagt þeim
ástæðuna fyrir því, að Glenn tók bíl-
inn, en ég gat ekki staðið augliti til
auglitis við þau núna. Og ég vildi ekki
tala við Glenn heldur.
En ég varð of sein. Herra og frú
Anderson gengu rakleitt inn í stofu,
en Glenn sá mig skjótast gegn um eld-
húsið til þess að fara upp stigann, bak-
dyramegin.
„Elín, bíddu. — Bíddu andartak."
Ég var komin upp í miðjan stigann,
er ég sneri mér við. „Elín, ég er ekki,
— ég er alls ekki gramur yfir neinu, ef
þú ert það ekki. Elín, ert þú — —■?“
Ég leit í augu hans. Elsku, elsku
strákurinn. Hann — já hann var kom-
inn til þess að fyrirgefa mér! Þrátt
fyrir framkomu mína og. hegðun.
„Nei, nei, guðvitað er ég ekki gröm,
Glenn,“ sagði ég.
Hann gekk upp í stigann til'mín og
horfði stöðugt beint í augu mér. „Við
gætum — ja, pabbi og mamma sögðu
að við gætum vel farið á dansleikinn
í Maysville á laugardaginn, ef þú vild-
ir koma með, ef þú-------.“
Ég greip um stiga-handriðið. Ég var
ekki viss um að ég gæti staðið óstudd.
Ég átti ekki skilið svo góðan dreng,
sem Glenn var. Ég vissi að ég átti það
ekki. Ekki eftir það, sem á undan var
gengið. En hér eftir yrði ég allt önnur.
Frá brjósti mínu steig þögul bæn um
að ég mætti verða meiri og betri
manneskja en ég hafði verið. Að mér
gæfist annað tækifæri. Ég myndi aldrei
hlaupa á mig í annað sinn.
„Það er ekkert til, sem ég vil frem-
ur, Glenn. Mér finndist dásamlegt að
fara með þér á dansleikinn."
Hann tók um hönd mína, er hann
kom upp í miðjan stigann til mín. Við
gengum saman niður þrepin. Ég gekk
við hliðina á Glenn og við hlið hans
vildi ég vera hér eftir.
★
20