Bergmál - 01.04.1954, Blaðsíða 23
HEILABROT:
1) Þá byrjum við á því að leggja
eina spurningu fyrir bílstjórana. —
Hvað sýnir hraðamælir bíls, sem ekur
þrjá fjórðu úr kilómetra á mínútu?
2) Hvaða tölu fáið þið út, ef þið
deilið með sjö í tölu, sem er mitt á
milli fimmtán og fimmtíu og fimm?
3) Hvort vegur þú meira á leiðinni
upp í lyftunni, eða á leiðinni niður í
lyftunni?
4) Ragnar og Tómas gengu frá
Reykjavík að Álafossi og til baka
aftur. Ragnar gekk 6 km. á klst. báð-
ar leiðir, en Tómas gekk 5 km. á klst.
aðra leiðina og 7 km. á klst. hina.
Hvor var fljótari, ef við gerum ráð
fyrir að öll vegalengdin sé 30 km.?
5) Frú Anna er einmitt komin á
þann aldur, að hún vill lítt hafa orð á
því hve gömul hún er. Því var það að
hún sagði þetta við manntalsskrifstof-
una: „Tölustafirnir tveir, sem aldur
minn er skrifaður með, gera saman-
lagt níu. Og ef þið lesið töluna aftur
á bak, þá fáið þið aldurinn á mann-
inum mínum, en hann vantar níu ár
upp á það að vera helmingi eldri en
ég.“ Hve gömul voru hjónin?
6) L R — Hér fara á eftir tvær ljóð-
línur úr alþekktri vísu eftir K.N., en
sá er ljóður á, að öll L og öll R hafa
verið tekin burtu og auk þess gleymzt
að hafa bil á milli orðanna:
Afangieynsuætegþettahef:
aðátadottinnáðameðanegsef.
Hvernig eru þessar ljóðlínur?
V erðlaunaheilabrot.
í Ameríku réðust fjórir menn inn í
banka og rændu allmiklu fé, og um
leið og þeir fóru út úr bankanum
sneri einn hinna fjögurra manna sér
við og skaut gjaldkera’bankans. Nöfn
mannanna fjögra voru þessi: Jón,
Ragnar, Tómas, Dagur.
Síðar upplýstist eftirfarandi:
a) Einn þessara fjögra manna var
fyrrverandi kappaksturshetja og ók
hann því bankaræningjabílnum.
b) Allan síðastliðinn mánuð hafði
Ragnar verið að reyna að fá kapp-
aksturshetjuna með sér í annað inn-
brot, en kappaksturshetjan alltaf færzt
undan vegna þess að hann treysti ekki
Ragnari og hafði hálfgerða skömm á
honum.
c) Kappaksturshetjan og Jón höfðu
nýskeð unnið allmikla upphæð í spil-
um af Degi.
d) Sá, sem skaut gjaldkerann er
mjög mikill vinur kappaksturshetj-
unnar.
e) Dagur hafði nýskeð grætt- stórfé
á veðreiðum og skipt því til helminga
við einkavin sinn, en það var maður-
inn, sem skaut bankagjaldkerann.
Hver þeirra skaut bankagjaldker-
ann?
Sendið lausnir til Bergmálsútgáf-
unnar, Reykjavík, fyrir 25. apríl n. k.
I. varðlaun: Ársáskrift Bergmáls.
II. verðlaun: Árgangur Bergmáls
1952.