Bergmál - 01.04.1954, Page 42
Apríl
B E R G M Á L------------------
frá þér á kistuna á hverjum
degi. En síðan Edyth kom ....
Ef til vill hefi ég fyllzt oflæti,
af því þú skrifaðir mér svo oft.
Að minnsta kosti var eftirvænt-
ing mín farin að dofna — það
fann ég bezt þennan eftirmið-
dag. Ég vildi ekki láta sjást
eftirvæntingu í fasi mínu, jafn-
vel mannlaust húsið mátti ekki
verða vitni að þeim ákafa, sem
gagntók mig. Ég neyddi sjálfa
mig til að ganga stillilega þvert
yfir anddyrið og látast hafa eins
mikinn áhuga á hinum bréfun-
um mínum,' sem raunverulega
voru fánýt og einskisverð. Mér
tókst jafnvel að láta bréfið þitt
renna kæruleysislega niður í
kjólvasa minn. Ég gekk upp all-
an stigann, án þess að stíga yfir
eina einustu tröppu. Alveg ná-
kvæmlega eins og ég var vön, er
ég gekk upp í herbergi mitt á
daginn til að snyrta mig, áður
en teið var drukkið og ekkert
sérstakt var í vændum. Eitt
krónublað lá á gólfinu í her-
bergi mínu. Það hafði fallið af
blómum, sem farin voru að
fölna, af því þau höfðu staðið
of lengi í blómavasanum, enda
þótt ekki væri það af van-
hirðu. — Það hefði átt að
vera búið að endurnýja þau
fyrir nokkru, en það var orðið
svo langt um liðið síðan þú
sendir mér blóm síðast. Þessi
voru hin síðustu, sem þú hafðir
sent mér — þessi gulnuðu og
fölnuðu krónublöð, sem farin
voru að falla, líkast brostnum
vonum. Edyth bar orkideur á
kjólnum sínum síðast liðinn
sunnudag, er hún kom úr leik-
húsinu. Hún bar þær þannig, að
auðséð var, að hún vildi láta
veita þeim athygli, en jafnframt
sá ég að hún var svolítið kvíðin
fyrir því hvað ég myndi segja..
Vissulega hefði það verið
kjánalegt, að láta leikhúsmið-
ana liggja ónotaða, þótt ég
gæti ekki farið. Mér þykir vænt
um, að þú skyldir taka hana
með þér í minn stað. Edyth er
svo hrifin af góðri hljómlist. Ég
geri að minnsta kosti ráð fyrir
að svo sé, því að þegar hún
kom heim, var hún rjóð og sæl-
leg, augu hennar dreymandi en
þó björt, eins og hún hefði lifað
ógleymanlega kvöldstund.
Hljómlistin hafði alltaf slík
áhrif á mig áður fyrr —. Nú
veit ég að ég þarf að hafa ein-
hvern við hlið mér, sem nýtur
hennar einnig. Ég nýt ekki
hljómlistar — alein.
Ég varð að tína margar
grammófónplötur úr sófanum
40