Bergmál - 01.04.1954, Page 47

Bergmál - 01.04.1954, Page 47
1954 „En hvað þú getur verið hirðulaus, Marion,“ sagði Edyth. „Það er eins og í verstu svína- stíu hér inni. Visnuð blöð út um allt gólf og svo öll þessi sendi- bréf í viðbót. Tekur þú aldrei til hér inni?“ Hún beygði sig niður og sópaði saman öllum bréfun- um og tók þau upp. „Hirðusemi þín er nú ekki alltaf á marga fiska heldur,“ sagði ég. „Áður en hægt var að setjast á sófann, varð ég að tína burt hrúgur af grammófón- plötum.“ „Ég bið afsökunar“, muldraði hún. „Ég vissi að þú myndir ekki þykkjast af því, þótt ég færi hingað inn og spilaði svo- lítið. Ég vissi ekki hvað ég átti af mér að gera eftir hádegið í dag og ranglaði þá hingað inn og spilaði nokkrar plötur. Ég geri ráð fyrir að þú hafir ein- hvern tíma sjálf spilað þér til afþreyingar.“ ------------------ Bergmál Ég kinkaði kolli — „Já, oft og mörgum sinnum,“ sagði ég. — En jafnframt hugsaði ég með sjálfri mér, að nú myndi ég aldrei gera það framar. Þá heyrði ég skyndilega að Edyth greip andann á lofti, svo varð dauðaþögn andartak. Þegar hún hóf máls á ný var eitthvað kalt og hörkulegt í rödd hennar, sem kom mér til að líta upp. „Fáðu mér þetta bréf, sem þú heldur á“, sagði hún skipandi. „Fáðu mér það strax.“ Ég hélt bréfinu fast að brjósti mér. „Hvað gengur að þér, Edyth?“ sagði ég. „Þú hefir engan rétt til að lesa þetta bréf. Það er til mín.“ „Einmitt það?“ sagði hún. Svo hélt hún bláa umslaginu framan við nefið á mér. Það var hennar nafn á um- slaginu. ÞÁ VAR ÉG XJNGUR Hreppsómaga-hnokki hírðist inni á palli, Ijós á húð og hár. Steig hjá lágum stokki stuttur brókarlalli, var svo vinafár. Lif hans var til fárra fiska metið. Furðanlegt hvað strákurinn gat étið. Þú varst líkuin, móðóir mín, og mildin þín studdi mig fyrsta fetið. (Öm Arnarsonj. 45

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.