Bergmál - 01.04.1954, Side 53
1954 ------------------------
þess að halda hægri fætinum í
skefjum, og forðast að hann
sparki.
Það, sem ég vildi gjarnan ráð-
leggja, er þetta: — Sparkið
í konuna, ef það er hið eina,
sem hægt er að gera. Látið
hana hafa það!
Hvað skiljum við, vinur minn,
ef til vill er það það, sem þær
vilja. Ef til vill óska þær þess
einmitt, að sparkað sé í þær. Ef
til vill er það einlægasta ósk
þeirra og þrá, að fá heljarmikið,
heilsusamlegt spark. Ég er á
þeirri skoðun, að spark Clip
Ryes hafi gert ungfrú Pfister
fremur gagn en bölvun. Og ég
þori að ábyrgjast, að þetta
spark verður til að umsnúa og
gjörbreyta ástalífi ungfrú Pfist-
er í framtíðinni.
Ástalíf ungfrú Pfister er ná-
kvæmlega jafn óskemmtilegt og
ástalíf hjá froski uppi í miðri
eyðimörku. Hún hefir aldrei átt
elskhuga. Hún hefir ekki hug-
mynd um, hvernig ilmurinn af
karlmanni getur verið. Hún
hefir aldrei fundið karlmanns-
hendur strjúka-sig, eins og karl-
mannshendur strjúka yfirleitt
konur. Eðlileg afleiðing þessa
er sú, að ástalíf hennar hefir
beinzt í margar áttir. Fyrst
söng hún í kirkjukórnum í
------------------ Bergmál
presbyteriana-kirkjunni. Þar
gerðist aldrei neitt. Þá fór
hún yfir í baptistasöfnuðinn
og gerðist þar kennslukona í
Sunnudagaskólanum. Þar gerð-
ist heldur ekkert. Þá fór hún
út í stjarnfræði, og fór að horfa
á stjörnurnar. Því næst varð
hún slúðursagna-kerling að at-
vinnu. Hún eyddi allri sinni
orku í það, að slúðra um sið-
ferðisskort fólksins í Coalinga,
einkum og sér í lagi Clip Ryes.
Þá tók hún líka fyrir allar kvik-
myndaleikkonur. Annað en þetta
komst ekki að í höfði hennar.
Mestri orku eyddi hún í að
blaðra um hið slappa siðferði
Clip Ryes, og þegar hún gekk
fram hjá honum á götu, þá
hnussaði hún og gekk snúðugt
áfram, hnakkakert með vand-
lætingarsvip.
Þetta var auðvitað hennar að-
ferð við að daðra. Hún var vit-
laus í Clip Rye. Hver einasti,
sem ekki var fæðingarhálfviti,
gat séð það, að ungfrú Pfister
var vitlaus í Clip Rye.
Hún lét alltaf svo, sem hún
myndi ekki líta við Clip Rye,
þótt hann yrði eini karlmaður
í heiminum. En þetta var aðeins
hennar aðferð við að daðra. Clip
var þetta líka vel Ijóst. Hann
vissi hvað fyrir henni vakti.
51