Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Qupperneq 22
20
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008
Guðmundur Björnsson ^
Saga Hraðfrystihúss Olafsvíkur h.f.
3. kafli
í síðasta Sjómannadagsblaði
lauk Asgeir Jóhannesson
annarri grein sinni um sögu
Hraðfrystihúss Ólafsvíkur.
Gunnar Bjarnason lést árið
1970 en hann var þá búinn að
vera framkvæmdstjóri frá árinu
1957 eða í 13 ár. Við því starfí
tók Helgi Jónsson í skamman
tíma en Guðmundur Björns-
son tekur síðan við í ársbyrjun
1972. Hann kom frá Reykjavík
og var menntaður frá Verslun-
arskóla Islands en Guðmundur
starfaði sem framkvæmdastjóri
við HÓ til ársins 1987. Rit-
stjóri Sjómannadagsblaðsins
óskaði eftir því við Guðmund
að hann skrifaði um sinn fram-
kvæmdastjóratíma og varð
hann góðfuslega við því. Guð-
mundur er fæddur 2. október
1933 en eiginkona hans er
Sjöfn Hjörleifsdóttir og eiga
þau þrjú börn Iðunni Helgu,
Björn og Margréti. Gefum nú
Guðmundi orðið:
I ársbyrjun 1972, þegar ég tek
við starfi framkvæmdastjóra
H.Ó., Hólavalla hf. og Fiski- &
sílarmjölsverksmiðjunnar hf. af
Helga Jónssyni voru í stjórn
H.Ó.: Guðlaugur Þorláksson
Guðmundur Björnsson
formaður stjórnar og meðstjórn-
endur Halldór Jónsson, Haukur
Sigtryggsson, Ólafur Kristjánsson
og Sigurður Ágústsson.
Miklar endurbætur
Var þá þegar hafin bygging nýs
frystiklefa við hraðfrystihúsið og
var því verki haldið
áfram og klefinn tekinn í notk-
un 1974. Hann var 484 m2 og
u.þ.b. 3000 m3 að stærð. Einnig
voru gerðar endurbætur á vélasal
og frystivélum. Var þetta mikil
breyting til bóta því nú var vörun-
um hlaðið á bretti og skipað
Sjöfn Hjörleifsdóttir eiginkona Guðmundar.
þannig út með nýjum rafmagns-
lyftara. I framhaldi af þessu var
hafizt handa við breytingar á
hraðfrystihúsinu í þá veru, að á 1.
hæð yrði kæld fiskgeymsla ásamt
vélflökunarsal fyrir hinar ýmsu
fisktegundir svo sem þorsk, ýsu,
ufsa, karfa, flatfisk o.fl. En á 2.
hæð var gert ráð fyrir að snyrting,
pökkun og frysting færi fram, en
einnig var þar matsalur og snyrti-
herbergi fyrir starfsfólk. Á 3. hæð
var gert ráð fyrir skrifstofum
ásamt nokkrum gistiherbergjum
fyrir aðkomuverkafólk. Á meðan á
þessum breytingum stóð fór öll
Æ Oskum öllum sjómönnum ogfjölskyldum til hamingju með daginn! þeirra,
Mikið vöruúrval til sjós og lands.- Verið velkomin, alltaf heitt ó könnunni.
Það eropið hjá okkur
alla virka daga
frá kl. 8.00 til 12.00
og 13.00 til 18.00