Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Síða 24
22
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008
Frá vinstri Einar Hallsson vann í áratugi hjá HÓ, Guðjón Bjarnason viðgerðarmaður, Guðmundur Sigur-
dórsson tækjamaður, Kjartan Þorsteinsson vélstjóri, Gylfi Scheving bílstjóri og seinna verkstjóri í
salfiskinum og Ragnar Ágústsson vélstjóri. Myndin er tekin í kaífistofunni hjá HÓ.
Ljósm. Björn Guðmundsson
vigtunar og pökkunar. Áður
liafði verið komið upp tölvukerfi
til vigtunar í flökun og snyrtingu
til þess m.a. að mæla nýtingu og
afköst í flakavinnslunni.
Samningur um afurðasöluna
Þegar eigendur HO keyptu af
Kirkjusandi hf. hafði verið gerður
samningur um að sjávarafurðdeild
SÍS fengi til sölumeðferðar helm-
ing frystra afurða beggja húsanna
þ.e. HÓ og Hólavalla, en SH
seldi helming afurðanna enda
skyldu kjör og afskipanir eldd vera
lakari hjá SIS en SH. Það var svo
líklega 1976, að SÍS var orðið
langt á eftir með afskipanir og
greiðslur og varð þá að samkomu-
lagi, að félögin hættu framleiðslu
fyrir SÍS og voru allar frystar af-
urðir fyrirtækjanna seldar á vegum
SH eftir það. Allur saltfiskur
fluttur út á vegum SIF og Samlag
skreiðarframleiðenda annaðist
sölu allrar skreiðar.
Yfir 200 manns í vinnu
Starfsfólk HÓ og tengdra fyrir-
tækja, sem hér koma við sögu og
HÓ annaðist reksturinn á, var að
sjálfsögðu mjög mismargt eftir
árstíðum, aflabrögðum o.fl., en
ekld mun fjarri lagi að áætla að
fjöldinn hafið verið yfir tvö hund-
ruð, þegar flest var til lands og
sjávar. Má þar nefna auk fram-
kvæmdastjóra, Ólaf Kristjánsson
yfirverkstjóra, Helga Kristjánsson
verkstjóra HÓ, Óskar Þorgilsson
verkstjóra Hólavalla og síðar HÓ.
Ragnar Ágústsson yfirvélstjóra og
vélstjórana Elinberg Sveinsson og
Kjartan Þorsteinsson. Skrifstofu-
stjóri var Snæbjörn Árnason og
síðar Björn Guðmundsson. Skrif-
stofa HÓ annaðist fjárreiður, bók-
hald og uppgjör fyrir Hólavelli
h£, FSÓ, Lóndranga hf, Bj örn
& Einar sf., Vararkoll hf. o.fl.