Kveikt á perunni - 15.01.2004, Blaðsíða 6
6
Kveikt á perunni
Elísabet Reykdal, dóttir Jóhannesar,
segir að Jóhannes hafi veriö góður
faðir, „en við urðum að hlýða." Hann
var mikill einfari og kunni illa við sig
uppáklæddur, vildi helst vera I
vinnugallanum allan sólarhringinn.
Þótt hann væri frumkvöðull á sviði
rafmagnsins leit hann fyrst og fremst
á sig sem trésmið og bónda.
dórs setti Jóhannes upp rafalinn og
einn starfsmanna hans, trésmiðurinn
Ami Sigurðsson, lagði raflagnir. Þann
12. desember þetta sama ár urðu
þáttaskil í sögu þjóðarinnar. Þá tók
virkjunin til starfa og ljós voru kveikt
í 15 húsum í Hafnarfirði, auk tré-
smiðjunnar. Þar á meðal voru tvö
stærstu hús bæjarins, bamaskólinn
og Góðtemplarahúsið. Einnig vom
tendmð fjögur götuljós. RafVæðing Is-
lands var hafin.
Eins og gefur að skilja varð strax
mikil eftirspurn eftir rafmagninu
Á þessum tíma var ekki hægt að
mæla rafmagnsnotkun heimilanna
þannig að Jóhannes tók til þess ráðs
að selja perur. Hann einn seldi per-
ina við Lækinn. Þá þurfti hann að
grafa um það bil eins kílómetra að-
veituskurð og er það fyrsti aðveitu-
skurðurinn sem grafinn var fyrir
vatnsaflsvirkjun á landinu.
Sem dæmi um framsýni Jóhannes-
ar segir Elísabet að hann hafi fjárfest
í fyrstu mjaltavélinni sem kom til
landsins og fyrstu dráttarvélinni sem
var Countor G, tíu hestafla framdrifin
vél sem hægt var að tengja ýmis hey-
vinnutæki við.
Þótt Jóhannes hafi rekið myndarbú
á Setbergi, með 20 kýr í fjósi 0g 200
ær, nægði það framkvæmdamannin-
um ekki. Hann reisti því timburversl-
un og trésmiðju við bæinn sem að
sjálfsögðu var drifin með afli úr lækn-
um.
Timbur og skonnorta
Elísabet Reykdal segir að Jóhannes
hafi víða séð tækifæri og hafi kunnað
að nýta sér þau. Hún nefnir sem dæmi
Jóhannes J. Reykdal var fremur lágur maður vexti og aldrei feitlaginn, dökkur á
hár og skegg. Hann var vel farinn í andliti, ennið hátt og mikið, augun stór og skýr.
Hann lét sér vaxa yfirvaraskegg á unga aldri og bar það alla ævi. Hann var kvikur
á fæti og snöggur í fasi, hljóp oft við fót þegar hann var á ferð, og var mikið niðri
fyrir þegar hann talaði. Hann var ótrauður til verka og gekk í hvað sem var ef hon-
um þótti seint ganga eða óhönduglega að staðið. Ekki fékkst hann þá um þótt hann
væri verkstjórinn og atvinnurekandinn. Hann var ör í lund og fljótur að skipta skapi
skaði og höndlaði stundum af bráðum geðþótta. En hann jafnaði sig fjótt að nýju
og veigraði sér þá ekki við að taka sig á og bæta um. Hann var I raun dregngur
góður og traustur vinur vina sinna.
Þannig er lýsing Stefáns Júlíussonar á Jóhannesi Reykdal sem birtist í bókinni
„Fimm athafnamenn í Hafnarfirði."
Frumkvöðullinn sem lýsti upp Hafnarfjörð
Herra Ásgeir Ásgeirsson, forseti íslands og frú Dóra Þórhallsdóttir á 50 ára
afmæli rafvæðingarinnar. í forgrunni er fyrsti rafall Jóhannesar Reykdals.
þegar þýska skonnortan Adelheid
strandaði í hafnarmynninu í Hafnar-
firði og sökk. Skonnortan var full af
kolum. Jóhannes keypti skipið fyrir
lítið og fékk mannskap með sér í að
koma vírum undir það og lyfti því síð-
an upp með prömmum og lét aðfalls-
ölduna mjaka því smám saman upp á
land. Björgunaraðgerðirnar gengu
órtúlega vel, en mesta vesenið var að
koma vírunum undir skonnortuna.
Jóhannesi leist ekki á hægaganginn
hjá köfurunum og brá sér því sjálfur í
kafarabúning og bjargaði málimum.
Þetta þótti mikil dirfska
og kafararnir sem biðu
á þurru voru orðnir ansi
smeikir, því Jóhannes
var mun lengur í kafi en
þeir voru vanir.
Elísabet segir að Jó-
hannes hafi haft allar
klær úti við að ná sér í
timbur. „Hún er fræg
sagan af því þegar hann
var í timburleiðangri en
erfitt var að finna skip
til að sigla með timbrið
heim. Þá fékk þá hug-
mynd að gera fleka úr
timbrinu og láta drátt-
arbát draga farminn
yfir hafið. Ekki varð úr
því, þar sem enginn banki vildi
tryggja farminn. Jóhannes gerði sér
því lítið fyrir og keypti barkaskip,
fyllti það af timbri og lét sigla því
heim.“
Það er óvinnandi vegur að gera æfi
Jóhannesar Reykdals skil í einni
blaðagrein, slík voru afrek hans. En
ekki verðdur hjá því komist að nefna
íshúsið sem hann reisti. Húsið fram-
leiddi ís fyrir togara Hafnfirðinga og
skilaði um leið miklum auði til bæjar-
ins. Aðrir togarar þurftu að fylla sig af
ís eftir söluferðir til útlanda meðan
hafnfirsku togaramir lestuðu kol og
fluttu heim til Hafnarfjarðar. Því varð
aldrei kolaskortur í Hafnarfirði, þökk
sé stórhug og framfaraviðleitni Jó-
hannesar Reykdals.
Jóhannes Reykdal varð goðsögn í
lifanda lífi. Hann fæddist að Valla-
koti í Reykjadal í Suður-Þingeyjar-
sýslu 18. janúar árið 1874. Tvítugur
að aldri hóf hann trésmíðanám hjá
Snorra Jónssyni trésmíðameistara á
Akurejmi og fjórum árum síðar silgdi
hann til Kaupmannahafnar til
frekara trésmíðanáms. Eftir þriggja
ára dvö ytra flutti hann heim til Is-
lands og ætlaði til Akureyrar en hann
hitti unga konu, Þórunni Böðvarsdótt-
ur og ástin varð til þess að hann festi
rætur sunnan heiða.
Fyrstu árin sinnti Jóhannes hús-
byggingum en fannst það ekki nóg.
Hann vildi reisa verksmiðju við Læk-
inn í Hafnarfirði og er það fyrsta stór-
virkið sem Jóhannes vann. Trésmiðj-
an var búin átta fullkomnum tré-
smíðavélum og staðsetningin var eng-
in tilviljun, því Jóhannes virkjaði læk-
inn og fékk þar orku til að knýja vél-
amar áfram. Elísabet Reykdal, dóttir
Jóhannesar, segir þetta fyrsta virkj-
unarafrek Jóhannesar megi rekja til
heimsóknar hans til Margrétar systur
hans sem bjó í Noregi. Þar sá hann
hvemig Norðmenn nýttu sér vatns-
aflið. Alls unnu tíu til tólf menn að
jafnaði í þessari fyrstu verksmiðju Jó-
hannesar.
Upphaf rafvæðingar
Jóhannes lét ekki staðar numið þótt
hann væri kominn með orku til að
knýja vélarnar, hann vildi nýta læk-
inn betur og framleiða rafmagn. Árið
1904 fór hann til Noregs og festi kaup
á rafal og setti sig í samband við
fyrsta íslenska raf&æðinginn, Halldór
Guðmundsson, sem nýkominn var úr
námi í Þýskalandi. Með hjálp Hall-
urnar og þegar pera sprakk þurfti fólk
að skila ónýtu pemnni til þess að
kaupa nýja. Áður en Hörðuvallavirkj-
unin kom mátti einungis hafa tvær
perur í hveiju húsi, þótt perustæðin
væm fleiri.
Bóndinn á Setbergi
Jóhannes Reykdal óttaðist ekki breyt-
ingar. Árið 1909 seldi hann Hafnar-
fjarðarbæ virkjanimar og keypti jörð-
ina Setberg. Hann seldi líka trésmiðj-
una en starfsmennirnir tólf ráku hana
áfram undir nafninu Trésmiðjan
um sinn fullnægði allri eftirspurn eft-
ir rafmagni í Hafharfirði. Þetta er
fyrsta sjálfstæða rafstöðin á Islandi og
hún tók til starfa haustið 1906 og
framleiddi 37 kW.
Dvergur. Fyrstu tvö árin hafði Jó-
hannes ráðsmann sem sá um búrekst-
urinn en árið 1911 tók hann við bú-
skapnum en sá fljótt að hann gat ekki
án rafmagns verið. Árið 1917 tók
hann sig til og reisti enn eina rafstöð-
hans Jóhannesar og tré-
smiðjuvirkjunin annaði
engan vegin eftirspurn,
jafnvel þótt Jóhannes hafi
bætt nýju vatnshjóli við
virkjunina. Jóhannes fór
því aftur af stað, fékk
vatnsréttindi ofar í lækn-
um og reisti á eigin spýtur
nýja rafstöð, á svo kölluð-
um Hörðuvöllum, sem fyrst
Jóhannes byggði þetta hús fyrir sig og Þórunni í Hafnarfirði.
Þetta var fyrsta húsið sem fékk rafmagn.
Jóhannes var mikill mannþekkjari og greiddi götu manna og gerði þeim greiða ef
honum féllu þeir í geð, þótt hann þekkti þá ekki náið. Dæmi um það er frásögnin af
sjómanninum sem lenti í vandræðum með húsbyggingu á kreppuárunum. Hann
missti allt sitt og var á götunni með fjölskyldu sína. Hann fór á fund Jóhannesar,
sem hann þekkti einungis af afspurn, og bað hann að reisa fyrir sig lítið hús fyrir
fjölskylduna. Hann sagðist ekkert geta borgað en myndi reyna að standa í skilum
þegar fram liðu stundir. Jóhannes svaraði fáu en lét verkin tala. Húsið var reist á
skömmum tíma og hvorugur tapaði á viðskiptunum.