Kveikt á perunni - 15.01.2004, Blaðsíða 29
Kveikt á perunni
29
Konungur í ríki sínu
Sigfús Guðlaugsson, rafveitustjóri á Reyðarfirði, er sá
sem völdin hefur í raforkumálum á Reyðarfirði. Hann er
rafveitan holdi klædd, enda eini starfsmaður veitunnar.
Því fylgir vitaskuld mikil viðvera, enda segist hann alltaf
vera í vinnunni, „nema þegar ég skrepp frá,“ segir hann
og hlær.
„Jú, jú, vitaskuld þarf alltaf að vera
hægt að ná í mig og lífið er reyndar
mun léttara núna eftir að GSM sím-
arnir urðu alsráðandi. Nú get ég
skroppið ffá með góðri samvisku með
símann í vasanum, því það er alltaf
hægt að ná í mig.“
Rafveita Reyðarfjarðar er sérveita
sem er í eigu sveitarfélagsins og Sig-
fús hefur rekið hana síðan árið 1967,
„þannig að ég ætti nú að kunna orðið
ágætlega á hana“, segir Sigfús. Raf-
veitan rekur litla vatnsaflsstöð sem er
frá árinu 1930 og ffamleiðir að jafnaði
milljón Kw á ári. Til viðbótar er ég
með díselrafstöð sem hægt er að keyra
þegar álagið er hvað mest og hún hef-
ur oft komið sér vel.“
Sem rafveitustjóri í eins manns raf-
veitu þarf Sigfús að ganga til allra
verka sem til falla. Hann grefur
skurði, leggur línur og kapla, skrifar
út reikninga og skiptir um perur í
ljósastaurum bæjarinns, svo eitthvað
sé neft. I desember sér hann einnig
um að setja upp jólaskreytingar á veg-
um bæjarinns.
„En þegar mikið er að gera leita ég
til verktaka og einn þeirra sem mikið
hefur unnið fyrir mig er öllum hnút-
um kunnugur og getur séð um stöðina
þegar ég tek mér ffí. Síðan hafa
kollegar mínir hjá RARIK verið liðleg-
ir og sent mér vinnuflokka ef ég þarf á
því að halda.“ segir Sigfús.
Sigfús segir að nægt vatn sé í ánni
núna, þrátt fyrir að veturinn hafi ver-
ið harðari en mörg undanfarin ár.
„Það er væntanlega vegna þess að það
snjóði áður en jörðin fraus. Fyrir vikið
er snjóhulan eins og einangrun sem
heldur hita á jörðinni og vatnsbúskap-
urinn er því nægur. Astandið er verst
þegar hitinn rokkar rétt upp og niður
fyrir frostmark. Þá á ég oft í vandræð-
um með grunnstingulinn sem safnast
fyrir á botninn eins og slæða og flýtur
síðan upp þegar frostið er orðin ein til
tvær gráður og stíflar ristamar."
Þegar mest var bjuggu 760 manns á
Reyðarfirði en þeim fækkaði vemlega
á síðustu árum, fóm niður í 610
manns. Núna er hins vegar uppgang-
ur á svæðinu og segir Sigfús að nú sé
búið í hveiju húsi og miklar bygginga-
framkvæmdir fyrirhugaðar í tengsl-
um við væntanlegt álver. Til þess að
undirbúa flölgunina setti Sigfús upp
nýja spennistöð á Reyðarfirði nú í
haust og hann segist hlakka vemlega
til að taka þátt í uppbyggingunni sem
fyrirhuguð er.
HÖNNUN
Grensásvegi 1 • 108 Reykjavík • Sími 510 4000 • Fax 510 4001
honnun@honnun.is • vwvw.hönnnun.is
Kraftur í þágu þjóðar
l áratugi hefur verkfræöistofan Hönnun verið ein helsta orkustöð Islendinga
varöandi hönnun og undirbúning raforkuvera og orkuflutningskerfa. Þannig
hafa starfsmenn Hönnunar unniö aö því aö virkja náttúrukraft landsins í
þágu þjóðarinnar.
Þjónusta Hönnunar byggist á þekkingu, fagmennsku og nákvæmni.
Fyrirtækið annast ráögjöf og alhliða verkfræöiþjónustu vegna
raforkumannvirkja s.s. háspennulína, stíflna, virkjana, jaröganga og veitukerfa.
Þegar kveikja þarf á perunni er Hönnun á heimavellí!
r
i.