Skógræktarritið - 15.10.2020, Síða 18

Skógræktarritið - 15.10.2020, Síða 18
SKÓGRÆKTARRITIÐ 202018 kvæmunum. Einnig reyndist furulúsin draga marktækt úr vexti smitaðra einstak- linga og sækja meira í hraðvaxta einstak- linga en hægvaxta. Inngangur Fyrstu skógarfuruplönturnar sem gróður- settar voru hér á landi voru ræktaðar upp af fræi í gróðrarstöðinni á Hallormsstað árið 1903 og gróðursettar í Hallorms- staðaskóg nokkrum árum seinna.10 Frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar og fram undir 1960 voru á milli 2-3 milljónir skógarfuruplantna gróðursettar víðs vegar um landið.11,12 Skógarfura er afar útbreidd tegund, en megnið af skógarfuru sem hér var gróðursett fram á sjöunda áratuginn var frá fremur afmörkuðu svæði í Norður- Noregi, aðallega Troms- (63,3%) og Nordlandsfylki (30,4%), en 6,3% voru af öðrum uppruna.9 Fram yfir 1950 var skógarfura oft flutt til landsins sem lifandi plöntur, en með uppbyggingu á gróðrar- stöðvum í landinu lagðist innflutningur á lifandi plöntum af og innflutningur á fræi tók við. Furulús barst líklega hingað til lands með plöntum frá Noregi sem fluttar voru til Hallormsstaðar árið 1937,20 en þar fer fyrst að bera á lúsinni upp úr 1940.1 Dow V. Baxter, prófessor í trjásjúk- dómum, sem ferðaðist um Ísland árið 1954, greindi frá miklum skemmdum á skógarfuru af völdum furulúsar víðs vegar um landið.3 Upp úr 1960 er síðan gróður- setningu á skógarfuru hætt vegna mikilla affalla.11 Vorið 1993 var gerð úttekt á ástandi eftirlifandi skógarfuru í landinu. Niðurstaðan var sú að hlutfall lifandi trjáa lægi á bilinu 5-60%, að meðaltali um 25%. Flest eftirlifandi tré voru í slöku ástandi og mjög fáir hraustir og lúslausir einstaklingar fundust.9 Upprunaleg heimkynni furulúsar eru í Evrópu. Þaðan hefur hún dreifst víða um heim, meðal annars til Eyjaálfu, Afríku og Ameríku. Furulús tekur til sín næringu gerði fyrstu úttektina á tilrauninni sem BS-lokaverkefni í skógfræði við Land- búnaðarháskólann árið 2007. Fyrir nokkru fór að bera á furulús í einni af tilraununum á Austurlandi og María Daníelsdóttir Vest, annar nemi í skógfræði, tók þá út furulúsarsmitið í þeirri tilraun sem BS- lokaverkefni sitt árið 2018. Niðurstöður þessara og fleiri úttekta voru teknar saman í grein sem birt var í alþjóðlegu vísindariti, Agricultural and Forest Entomology. Hér birtast helstu niðurstöður þeirrar greinar (með leyfi), enda telja höfundar að þær eigi ekki síður erindi við skógræktaráhuga- menn á Íslandi. Þeim sem hafa áhuga á að lesa greinina alla á ensku skal bent á slóðina: https://onlinelibrary.wiley.com/doi/ abs/10.1111/afe.12369. Útdráttur Skógarfura var fyrst gróðursett á Íslandi í byrjun síðustu aldar en ekki að neinu marki fyrr en á sjötta áratugnum. Alls voru gróðursettar 2-3 milljónir plantna, en yfirgnæfandi meirihluti þeirra var upprunninn í Norður-Noregi. Töluvert var um innflutning skógarfuru- plantna og með þeim mun furulús sennilega hafa borist til landsins árið 1937. Hún breiddist hratt út á sjötta áratugnum og jafnframt urðu þá mikil afföll í skógarfuru- gróðursetningum um allt land. Gróðursetn- ingu skógarfuru var því nær alfarið hætt í byrjun sjöunda áratugarins. Þessi rannsókn sýndi að íslensk skógarfuru- kvæmi voru mun minna smituð af furulús en erlend kvæmi í tilrauninni í Mjóanesi. Þetta bendir sterklega til þess að furulúsar- faraldrarnir sem geisuðu á sjötta áratugnum hafi leitt til náttúrulegs úrvals og að það sé ástæða þess að afkomendur þeirra trjáa sem lifðu faraldurinn af séu minna móttækilegir fyrir furulús en sá efniviður sem hér var upphaflega gróðursettur. Aðrar helstu niðurstöður þessarar rannsóknar voru þær að enginn marktækur munur fannst á furulúsarsmiti á erlendu
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Skógræktarritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.