Skógræktarritið - 15.10.2020, Page 40

Skógræktarritið - 15.10.2020, Page 40
SKÓGRÆKTARRITIÐ 202040 að berjast gegn henni á svæðum þar sem hún er vandamál. Líklega verður það ekki bara ertuygla sem mun valda auknum skaða í skógrækt á Íslandi í framtíðinni en rannsóknir hafa nú þegar sýnt að helsta ástæða landnáms nýrra meindýra á trjám og runnum hérlendis er hlýnun.6 Rannsóknir hafa einnig sýnt að kvæmi sömu tegundar geta verið mis móttækileg og viðkvæm fyrir skaðvöldum.4 Því er mikilvægt að auka rannsóknir á því hvaða efniviður reynist best gegn meindýrum á trjám á Íslandi til þessa að vita hvað æskilegt sé að notast við í framtíðinni. Þakkir Bjarna D. Sigurðssyni er þakkað kærlega fyrir mikilvæga aðstoð við þetta verkefni, ekki síst fyrir ráðgjöf við tölfræðilega úrvinnslu. Verkefnið var einnig styrkt af minningarsjóði Hjálmars R. Bárðarsonar og Else S. Bárðarson og Vísindasjóði Suðurlands og þakka höfundar kærlega fyrir veittan stuðning. Heimildir 1. Bjarni Diðrik Sigurðsson, Guðmundur Halldórsson og Lárus Heiðarsson. 2003. Ertuygla. „Nýr” vágestur í skógrækt í nánd við lúpínubreiður. Skógræktarritið 2003 (1): 87-92. 2. Brynja Hrafnkelsdóttir og Edda Oddsdóttir. 2010. Ertuygla. Ársrit Skógræktar ríkisins 2009: 18-19. 3. Erling Ólafsson og Hálfdán Björnsson. 1997. Fiðrildi á Íslandi 1995. Náttúrufræðistofnun Íslands Reykjavík. 135 bls. 4. Heidarsson, L., Sigurdsson, B.D., Davidsson, B.O., Hrafnkelsdottir, B., Sigurgeirsson, A., Skulason, B., Danielsdottir Vest, M. og Halldorsson, G. 2020. The effect of the pine woolly aphid (Pineus pini) on survival, growth and natural selection in Scots pine (Pinus sylvestris) in Iceland. Agricultural and Forest Entomology, 22: 146-156. 5. Halldór Björnsson, Bjarni D. Sigurdsson, Brynhildur Davíðsdóttir, Jón Ólafsson, Ólafur S. Ástþórsson, Snjólaug Ólafsdóttir, Trausti Baldursson og Trausti Jónsson. 2018. Hnattrænar loftslags- breytingar og áhrif þeirra á Íslandi. Skýrsla vísindanefndar um loftslagsbreytingar. Veðurstofa Íslands, Reykjavík. 238 bls. 6. Halldórsson, G., Sigurdsson, B.D., Hrafnkelsdóttir, B., Oddsdóttir, E., Eggertsson, Ó. & Ólafsson, E. 2013. New arthropod herbivores on trees and shrubs in Iceland and changes in pest dynamics: A review. Icelandic Agricultural Sciences (26): 69-84. 7. Hrafnkelsdottir, B., Sigurdsson, B.D., Oddsdóttir, E., Sverrisson, H. & Halldórsson, G. 2019. Winter survival of Ceramica pisi (Lepidoptera: Noctuidae) in Iceland. Agricultural and Forest Entomology (21): 219-226. 8. Michael, G. P. 2002. A world revision of the genus Spodoptera Guenée: (Lepidoptera: Noctuidae). Memoirs of the American Entomological Society: 1-200. 9. Wolff, N.L. 1971. The Zoology of Iceland. Munksgaard, Copenhagen. 193 bls. Höfundar: BRYNJA HRAFNKELSDÓTTIR, EDDA S. ODDSDÓTTIR OG GUÐMUNDUR HALLDÓRSSON einstaklinga innan tegundar og á milli tegunda. Valdar voru tilviljunarkennt tvær gróðursetningarlínur af ösp og tvær af greni. Beitarskemmdir voru metnar á um það bil 50 trjám í hverri línu með því að flokka trén í eftirfarandi flokka: 0 = engar skemmdir, 1 = 0-25% aflaufgun, 2 = 25-50% aflaufgun, 3 = 50-75% aflaufgun og 4 = 75-100% aflaufgun. Samtals voru 93 grenitré og 114 aspir metnar. Snemma árs 2014 var hæðarvöxtur 2012-2013 mældur. Mikil ertuyglubeit hafði neikvæð áhrif á vöxt grenis en engin áhrif á vöxt aspar (6. mynd og 7. mynd). Þessar niðurstöður eru í samræmi við rannsóknir Bjarna Diðriks o.fl.1 þar sem ertuygla hafði mun meiri áhrif á vöxt grenis en aspar1 en þar var um yngri og minni tré að ræða. Þeir töldu líklegt að þessi munur stafaði af því að öspin endurnýjar laufmassann næsta vor en grenið endurnýjar hann aðeins að hluta til. Einnig geti hraðari umsetning plöntuvefs sem fer í gegnum ertuyglu aukið skammtíma næringarframboð á svæðinu. Þar er bæði um að ræða lúpínu í undirgróðri og lauf/nálar trjáa. Framtíðarspá Meðalhiti á Íslandi fer hækkandi og því hefur verið spáð að þessi hækkun muni líklega vera hraðari á þessari öld en þeirri síðustu.5 Þar sem niðurstöður rannsókna okkar á ertuyglu hafa sýnt að aukinn sumarhiti geti haft jákvæð áhrif á stofnstærð ertuyglu hérlendis er ekki ólíklegt að hún muni halda áfram að dreifa sér um landið á næstu árum. Með aukinni stofnstærð mun hún líklegast verða meira vandamál í nýskógrækt. Niðurstöður okkar og Bjarna o.fl.1 sýna að hún getur dregið verulega úr vexti grenis, en ekki aspar. Ekki er ólíklegt að sama geti átt við um aðrar tegundir lauf- og barrtrjáa. Þá er ótalið að þekkt er að ertuyglufaraldrar geta valdið umtalsverðum afföllum í nýskógrækt (Brynja Hrafnkelsdóttir, óbirt gögn). Það virðist þó vera munur á milli trjátegunda hversu viðkvæmar þær eru fyrir beit hennar og því getur rétt tegundaval hjálpað til við
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.