Skógræktarritið - 15.10.2020, Síða 43

Skógræktarritið - 15.10.2020, Síða 43
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2020 43 dögum. Með hugtakinu að tálga þá á ég við að öll vinna fari fram með hnífum og þá jafnvel einum hníf. Vasahnífar voru og eru ekki óþekktir í vösum landans. Hér áður fyrr og fram til þessa dags voru Otter vasahnífar frá Solingen í Þýskalandi vinsælir í vösum landans og seinna komu fínlegir vasahnífar frá Viktorinox á markaðinn. Einhvern veginn þróaðist þessi „hnífamenning“ hér á landi þannig að menn höfðu hnífana í vösunum en ekki hangandi utan á sér eins og algengt er í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Samar hafa í gegnum tíðina haldið stíft um sitt hnífsform bæði hvað stærð og lögun varðar þar sem ákveðin svæði eða hlutar hnífsins eru notaðir til hinna ýmsu hefðbundnu verka, t.d. er bakkinn næst hnífsskeftinu notaður í grófa vinnu eins og að brjóta bein til „mergjar“ til að ná mergnum úr þeim, andstætt bakkanum næst skeftinu er hnífurinn notaður til að höggva grófar greinar og kljúfa við. Aðrir hlutar hnífsins eru notaðir í áföngum til mis fínlegra verka þar sem bit hnífsins þarf að njóta sín t.d. eins og við að tálga og skera í. Segja má að „samahnífurinn“ sé táknrænn fyrir Samana bæði við dagleg störf sem og við þjóðbúning þeirra. Hnífar eru og hluti af þjóðbúningum flestra norrænu þjóðanna nema Íslendinga. Á tímum víkinganna voru menn vel vopnum búnir og eru konuhnífar frá þeim tíma vel þekktir. Tálgaðir og ískornir nytjahlutir hafa verið unnir um alla Evrópu frá örófi alda og eru enn sjálfsagður þáttur í daglegu lífi t.d. eins og í skógarhéruðum Rúmeníu. Ef við látum hugann reika getum við séð fyrir okkur viðarhús, jafnvel bjálkahús, á landlítilli jörð þar sem allt er nýtt til hins ýtrasta til þess að ábúendur geti komist af. Þar er flest allt gert úr tré. Spænir, diskar, skálar, bakkar, smjörmót og misstórar ausur eru hlutir sem eru notaðir daglega við matreiðslu og til að matast með. Svo til öll húsgögn, hrífur, tréklossar, rokkar, prjónar, öskjur og kistlar ýmiskonar voru og eru velþekktir nytjahlutir úr trjám. Í skógarlöndunum var það viðtekin venja á árum áður að menn gengu til skógarhöggs eftir jólin þ.e. á nýju ári í janúar og fram í mars. Á þeim tíma var að öllu jöfnu talsverður snjór yfir sem auðveldaði mönnum að draga trén úr skóginum með aðstoð hesta og sleða. Það er auðvelt að gera sér í hugarlund að á kvöldin hafi skógarhöggsmennirnir haft ofan af fyrir sér með hníf í hönd með því að vinna nytjahluti til heimilisins og jafnvel stöku leikfang eins og hest eða tréálf til að gleðja börnin þegar þeir komu aftur heim. Það má leiða líkum að því að vasahnífurinn hafi fylgt landnemunum frá Evrópu til N-Ameríku og hefðin að tálga með vasahníf hafi borist þangað með þeim á sínum tíma. Það er einmitt þessi litli samanbrjótanlegi vasahnífur sem hefur nú fengið uppreisn æru í N-Ameríku, ekki bara sem ótrúlega vinsæll söfnunargripur heldur sem eitt vinsælasta verkfærið við tálgun og segja má að þar sé einskonar lífstíll að tálga með vasahníf. Gerð og viðhald hnífa Hvað varðar efnið sem notað er í hnífsblöðin þá er hægt að æra óstöðugan að átta sig á öllum þeim málmblöndum sem notaðar eru í hnífsblöð og allir framleiðendur eru að gera það besta sem völ er á að þeirra mati. Carbon stálið (kolefnisstál) ber af öðrum málmblöndum til smíða á hnífsblöðum vegna þess að hægt er að ná miklu og langvinnu biti í þau. Kostir carbon stáls eru ekki auðútskýrðir í stuttu máli en líklega er auðveldast fyrir almenning að átta sig á því að ekki er um ryðfrítt stál að ræða. Í því felst að nokkra vinnu þarf að leggja á sig við umhirðu hnífsblaða úr carbon stáli, sem svo skilar sér í margfalt betra og endingarbetra biti. Talsverður munur er á málmblöndum sem eru notaðar í hnífsblöð t.d. hvort nota á hnífinn á heitum svæðum jarðarinnar eða köldum. Carbon stálið skiptist í fjóra megin flokka Low
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Skógræktarritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.