Skógræktarritið - 15.10.2020, Síða 50
SKÓGRÆKTARRITIÐ 202050
í 5 cm. Oftast eru blöðin mjög þunn og
mjó. Oddurinn birtist í mörgum útgáfum
ætlaður til hinna ýmsu verka. Eiginlega
skarast þurrtálguhnífarnir við útskurðar-
verkfærin meira og minna sem og
athöfnin að tálga í þurran við. Að tálga
í blautan skógarvið er oftast framkvæmt
með misstórum dálkum. Hnífarnir frá
Mora í Svíþjóð eru líklega þeir bestu sem
völ er á hvort sem það eru tálguhnífarnir
eða stærri hnífar eins og Mora Garberg
sem er fulltang hnífur gerður úr Sandvik
stáli 14C28N 3,2 mm á þykkt og þess
vegna næsti bær við öxi ef svo ber undir.
Sú venja hefur skapast við tálgun úr
blautum skógarvið að eiga ekkert við
smíðisgripina eftir að þeir eru fulltálgaðir
þ.e. ekki fara með sandpappír á hlutina.
Það má skafa aðeins ef þörf er á, bæsa og
mála.
Axir eru ómissandi þáttur í tálgun. Það
er hægt að nota þær á nær óendanlegan
hátt. Það eru smíðaðar margar útgáfur af
öxum hver í sitt verkefnið hvort sem verið
er að fella tré, kljúfa það eða höggva það
til á annan hátt. Sænska Carving öxin frá
Gransfors í Svíþjóð er verkfæri sem allir
þurfa að eiga sem tálga eitthvað að ráði úr
skógarvið.
Í dag á tímum allsnægta höfum við úr
mörgum gerðum af hnífum að velja og
þurfum ekki að notast bara við einn eða
tvo hnífa í verkefnin. Í seinni tíð skiptum
við hnífunum gróflega í tvo megin flokka
– hnífa til að tálga í blautan skógarvið t.d
dálka og svo hnífa til að tálga í þurran
við, þar eru hnífar eins og t.d. sjálfskeið-
ungar (vasahnífar). Þurrtálguhnífarnir
eru í fínlegri kantinum, með frekar
stuttum blöðum frá ca. 13 mm og upp
Tálgað í söguna
Það er nú einu sinni þannig að við erum
ekki öll gerð úr sömu spýtunni, sem
betur fer. Mér finnst t.d. ótrúlega
gaman að tálga til persónur í
sögubútum sem ég hef skrifað gegnum
árin. Skrifin byrjuðu með kennsluefni,
margþættu tengslaverkefni yfir mörg ár.
Umsjónarkennari hélt utan um að
sagan eða námsefnið væri lesið í þaula
með aðstoð mynda (glærur). Á góðum
haustdegi var haldið til skógar í rútu,
með nesti og nýja skó, foreldrar voru
velkomnir og létu þeir sig ekki vanta
hvorki í skógarferðirnar né í siglingar
um úteyjar Breiðafjarðar á selaslóðum,
fuglaskoðunarferðir eða á matar-
kvöldin. Í skógarferðunum fengu
nemendur og foreldrar þeirra að
kynnast skóginum, ganga um hann og
lifa sig inn í umhverfið og söguna sem
nemendurnir voru búnir að lesa. Í
ferðunum öfluðu þau efniviðar eins og
að saga niður greinar og smá tré til
frekari nota í smíðastofu skólans. Tína
smá steina og laufblöð og tína upp í sig
ber og ber, og nestið maður, þá náði
tilveran hæstum hæðum. Næstu vikur
fóru í að teikna og mála myndir úr
ferðinni sem voru svo útfærðar í
efniviðinn sem aflað var úr ferðinni; allt
sagað út og málað og komið fyrir á
spjaldi sem var ca. 35 x 80 cm. Við
látum hugann ráða för og lifum okkur
inn í dæmigerða skógarsögu þar sem
skógarálfar og ýmsar lífverur koma við
sögu. Skógarálfar eru frekar litlar verur
um 13 cm á hæð, rauðhærðir og
freknóttir með stór himinblá augu. Þeir
búa þar sem birkiskógur vex. Álfarnir
eru oftast bláklæddir með stóran lurk í
hendi, sumir eru með hvíta dúfu með
sér sem Beggi á Klukkubergi í Norður-
skógi ræktar til að geta sent skilaboð