Skógræktarritið - 15.10.2020, Page 54

Skógræktarritið - 15.10.2020, Page 54
SKÓGRÆKTARRITIÐ 202054 með í leiknum. Það leist Bjarka vel á en spurði systurnar hvað þetta gráa væri sem þær höfðu stillt upp til að skjóta niður með sortulyngsberjunum. Þetta gráa kemur frá uglunum í trénu, þetta eru ælur sem uglurnar æla upp úr sér eftir matinn sem svo detta niður á jörðina allt í kring um tréð sem Benjamín á heima í. Innan í ælunni er fiður, goggar af smáfuglum og bein, stundum eru músatennur í ælunum. Pabbi okkar er búinn að gera samning við uglurnar um að láta okkur í friði, í staðinn nagar hann til greinar svo uglurnar geti setið á kvisti og úað á kvöldin. Þegar þau höfðu leikið sér smá stund kom Fjóla mamma út og spurði Bjarka hvort hann vildi koma með þeim suður á melinn hjá gömlu skógar- furunni til að safna blöðum af plöntu sem heitir músareyra sem þau ætla að hafa með kvöldmatnum og þar rétt hjá vaxa fífur sem við þurfum að safna til að snúa í kveik í vaxkertin sem við búum til úr vaxinu frá humlunum, og svo væri gaman ef þú borðaðir með okkur Bjarki minn og segðir okkur fréttir úr Álfasteini. Í kvöldmatinn fáum við ost með skógarfurufræjum og músareyra, og með þessu drekkum við fíflamjólk sem Skottu og Hrímu finnst svo góð, sérstaklega með smá hunangi út í. Um daginn þegar skógarvörðurinn var á ferðinni að tína skógarfuruköngla fékk hann sér bita af nestinu sínu og skildi eftir ostsneið sem Skotta og Hríma fundu og fullt af fræjum af skógarfurunni sem hafa hrunið úr könglunum þegar hann var að safna þeim. Eftir góðan kvöldverð hélt Bjarki heim á leið saddur, glaður og kátur. fylgdi honum heim til sín. Bjarki varð svo glaður yfir því að Benjamín vinur hans skyldi finnast í tæka tíð fyrir myrkur að hann ákvað að heimsækja Benjamín til að heyra alla söguna af hverju Benjamín hefði villst í skóginum. Á leiðinni hitti hann humlu sem sagðist eiga leið um Grenistíginn og sjálfsagt væri að taka hann með. Það urðu miklir fagnaðarfundir með þeim Bjarka og Benjamín þegar þeir hittust. Selja mamma Benjamíns byrjaði strax að baka pönnukökur fyrir þá. En pönnukökurnar hennar Selju með bláberjasultu og rjóma eru víðfrægar um allan skóginn og jafnvel suður í Langaskógi þar sem Bína frænka Benjamíns á heima. Rjómann gerir Selja úr fíflamjólk og er hann sérlega góður á pönnukökurnar. Meðan þeir hámuðu í sig pönnukökurnar og drukku heitt daggarseiði úr kuðungum gert af blóðbergi, einiberjum og blöðum af aðalbláberjalyngi, sagði Benjamín Bjarka frá því hvernig skuggi hefði liðið yfir skóginn og skyggt á sólina, þegar hann leit upp hefði stór örn svifið yfir og hann orðið skelfilega hræddur og hlaupið langt inn í skóginn og orðið rammvilltur. Hann var svo heppinn að Hallur í Álfasteini, pabbi Bjarka, hefði átt leið um mætt honum og fylgt honum heim. Þegar Bjarki kom út frá Benjamín kanínu voru systurnar Skotta og Hríma að leika sér fyrir utan heimilið sitt. Þær voru með eitthvað grátt sem líktist könglum sem þær höfðu raðað upp og svo hentu þær rauðum sortulyngsberjum til að fella það. Systurnar voru mjög glaðar að sjá Bjarka vin sinn og buðu honum að vera Höfundur: TRAUSTI TRYGGVASON
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.