Skógræktarritið - 15.10.2020, Page 63
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2020 63
rauðgrenis vegna þess að neðri greinar þess
verða mjórri sem myndar minni kvisti í
viðnum (3. mynd).24
Lokaorð
Hér hefur verið farið nokkuð almennt yfir
þá þætti sem skipta máli við umhirðu og
tegundaval í blandskógum og áhrif þeirra
á framleiðni og vöxt. Það hefur sýnt sig
að þéttleiki, tegundaval og ekki síst réttar
aðferðir við millibilsjöfnun og skógarhögg
eru grundvöllur að betri blandskógum.
Þar þarf oft að gera hlutina öðruvísi en í
hefðbundinni einnar tegundar skógrækt.
Þar sem ríflega fjórðungur allra ræktaðra
skóga landsins eru nú blandskógar er
mikilvægt að stórauka hér rannsóknir á
blöndun tegunda og hvernig best sé að
hirða um þær svo að skógarnir nýtist sem
best. Höfundar vona að greinin stuðli að
aukinni umræðu hérlendis um þessi mál.
Þakkir
Fyrsti höfundur þakkar prófdómara sínum,
Hreini Óskarssyni, fyrir margar gagnlegar
ábendingar í meistaravörninni og öðrum
áheyrendum fyrir ýmsar spurningar og
umræður sem urðu til að bæta þessa
samantekt. Hann vill einnig þakka þýska
skógfræðinemanum Ben Lukas Wisniewski
birki við millibilsjöfnun, en það sáir sér alltaf
inn sjálft. Á Íslandi er nánast engin sjálfsáning
inn í gróðursetta reiti, nema þar sem þeir
vaxa í næsta nágrenni birkiskógaleifa, og
þeir verða þess vegna almennt ekki jafn þéttir
og skógar við sama aldur á öðrum Norður-
löndum jafnvel þó það sé búið að millibils-
jafna einu sinni (5. mynd). Þetta er ein ástæða
þess að á Íslandi notum við yfirleitt meiri
upphafsþéttleika í gróðursettum skógum en
gert er í Skandinavíu.
Arðsemi fyrstu grisjunar af nýtanlegu efni
fer mjög eftir því hversu margir rúmmetrar
eru fjarlægðir úr reitnum. Eins og talað var
um áður getur framleiðslan í blönduðum
reitum verið meiri en í einnar tegundar
reitum og gæti þess vegna aukið tekjur af
fyrstu grisjun miðað við blandskóg. Arðsemi
fyrstu grisjunar fer þó einnig mjög eftir því
hversu stór trjábolurinn er. Of margir mjóir
stofnar í þéttum blandskógi leiða til meiri
kostnaðar.2
Arðsemi síðustu grisjunar og lokahöggs
fara meira eftir trjá- og timburgæðum
og þar sem samkeppni í yngri reitum er
mikilvæg fyrir aukin gæði, þá gæti það
verið kostur fyrir blandaða reiti sem hafa
vaxið upp með mikinn þéttleika af t.d.
sjálfsánu birki.19 Skjól með birki hefur
einnig sýnt fram á að auka timburgæði
5. mynd. 15 ára skógur í Sunne í Vermlandi í Svíþjóð í forgrunni. 1900 gróðursettar skógarfurur (Pinus sylvestris)
og rauðgrenitré á hektarann með sjálfsánu birki. Millibilsjafnað var við 10 ára aldur (t.v.). 15 ára tilraunaskógur í
Gunnarsholti á Rangárvöllum. Um 1900 sitkagreni (Picea sitchensis) og birkitré á hektarann. Engin millibilsjöfnun
(t.h.) Myndir: JHK