Skógræktarritið - 15.10.2020, Page 98
SKÓGRÆKTARRITIÐ 202098
í fjáröflunarskyni. „Það höfðu samband
við okkur foreldrar sem voru orðnir
svolítið leiðir á að selja klósettpappír og
lakkrís og spurðu hvort ekki væri hægt að
kaupa plöntur sem krakkarnir gætu fengið
að gróðursetja í land hjá Skógræktarfé-
laginu. Við gerðum tilraun með þetta.
Þau fengu viku til að selja ættingjum og
vinum rándýrar skógarplöntur og tókst
að selja hátt í þúsund. Við stjórnarmenn
stóðum síðan vaktina í Laugalands-
skógi og tókum á móti þeim í hollum,
15-20 í einu og foreldrar komu með.
Þau fengu smáfræðslu um gróðursetn-
ingu og skóginn, settu niður plöntur og
fengu fullt af peningum í kassann,“ segir
Sigríður Hrefna sem telur að þetta mætti
gera víðar. „Í framhaldinu fréttu önnur
foreldrafélög af þessu og spurðu hvort
þau mættu líka gera þetta. Við þurfum
eiginlega að setjast niður og skoða hvernig
við ætlum að gera þetta. Þetta ætti að
vera hægt en það þyrfti að reikna dæmið
til enda fyrst,“ segir Sigríður Hrefna sem
vill einnig bæta fræðsluþættinum inn í
við værum í einhverjum samskiptum t.d.
við skógræktarfélögin á Ólafsfirði eða í
Suður-Þingeyjasýslu og svarið var bara
nei. Svo hugsaði ég með mér: Af hverju
ekki? Af hverju er ekki meira samtal á milli
félaga? Jú, jú, við hittumst á aðalfundum
Skógræktarfélags Íslands en lítið þar fyrir
utan. Ég hugsa að félögin gætu alveg grætt
á því og að það þurfi ekki alltaf að koma
til kostnaðarsamar eða erfiðar ráðstefnur.
Kannski þarf maður bara að byrja á því að
hringja í hina og spyrja hvernig gangi hjá
þeim þannig að fólk þurfi ekki að finna
upp hjólið á hverjum stað. Þá er ég ekki að
hugsa um þetta verklega, gróðursetningu
eða umhirðu heldur allt umstangið. Hvaða
styrki ertu að sækja um? Hvaða samstarfs-
aðila ertu með og hverjir hafa hjálpað
þér?,“ spyr Sigríður Hrefna og tekur undir
að þarna sé mikill brunnur þekkingar og
reynslu sem vert sé að sækja í.
Haustið 2019 var bryddað upp á
þeirri nýbreytni í starfi Skógræktarfé-
lags Eyfirðinga að tíundu bekkingar úr
Lundarskóla seldu og gróðursettu plöntur
Anna Guðmundsdóttir, móðir Sigríðar Hrefnu, við myndarlegt rauðgrenitré. Hún hefur leyft fólki að velja sér jólatré í
skóginum og ekur þeim svo heim til þess skömmu fyrir jól. Mynd: Sigríður Hrefna Pálsdóttir