Ný menntamál - 01.06.1994, Side 6

Ný menntamál - 01.06.1994, Side 6
NÝ MENNTAMÁL 2. tbl. 12. árg. 1994 w Ahrif breytinga og 1------------ sparnaöar á viðkvæma nemendur Þóít ekki hafi verið dregið afsérkennslukvóta í grunnskólum hefur almennt kennslumagn verið skert nokkuð undanfarin tvö ár. Heil- brigðisþjónusta er fjölskyldum nú mun dýr- ari en áður var. Atvinnuleysi blasir við mörgum. Grunnskólinn mun á nœsta ári flytjast til sveitarfélaga. Hœtt er við að versnandi kjör og breytingar á skólastarfi komi verstniður á þeim sem sístmega við því, þeim sem hallt standa í skóla. Þetta eru ekki endilega börn sem skilgreind hafa verið sem sérkennslunemendur, enda fengju þeir þá aukakennslu, heldur er stór hópur nem- enda sem „ekki nýtir sér tilboð skólans sem skyldi“ eins og það er orðað og er af ýmsum ástæðum í stöðugri hættu aðfallafyrir borðfái hann ekki viðeigandi stuðn- ing. í alþjóðlegu samhengi standa íslendingar vel að vígi í menntamálum. Aætlað hefur verið að í heiminum séu um 100 milljón börn án nokkurs tilboðs um menntun. Þar af eru stúlkur um tveir þriðju hlutar.1 Mikill meiri- hluti þeirra 200 milljóna barna sem áætlað er að séu á einhvern hátt fötluð í heiminum búa í þróunarlöndum þar sem nauðsynlegasta þjónusta er í besta falli tak- mörkuð en víða engin.2 Aðalritari UNESCO hefur og sagt3 að í allt að helmingi þróunarlanda sé nú lengra í land en áður að ná því takmarki að öll börn á grunn- skólaaldri njóti menntunar. Astæðurnar eru víðast hvar þær að nú fer hlutfallslega minna en áður af þjóðartekjum til menntunar heldur en í afborganir lána og vopnakaup.4 Víða búa börn við atvinnuleysi for- eldra sinna og fjölskyldur við takmarkaðan félagslegan stuðning. Við þær aðstæður er ekki auðvelt að einbeita sér að námi. Með slíkan samanburð erum við vel stödd. Allgóð sátt er um þann lagaramma sem grunnskólinn byggir á. 6 tuðningur í námi felur í sér virðingu, hvatningu, leiðbeiningu, kröfur og von fyrir hönd nemandans. Hann felur í sér raunhœfa aðstoð og er því annað og meira en velvildin ein. Hann merkir meðal annars að fela fólki ábyrgð á eigin málum og styðja það íþví að ná sínum markmiðum. Vonandi verða slík gildi ávallt höfð að leiðarljósi við endurskoðun á íslenska grunnskólanum. Hér ganga öll börn í skóla og konur eru nú jafnfjöl- mennar körlum í háskólanámi. Hér kveða lög á um jafnan rétt allra til náms og þjónustu og fulla þátttöku fatlaðra í samfélaginu, þar með töldum skólum. Við erum blessunarlega laus við vopnakaup. Flest íslensk börn og unglingar vilja ganga í skóla og standa sig vel. Er þá allt með felldu? Mörgum börnum og unglingum í íslenskum skólum gengur ekki vel í námi. Samkvæmt nýlegri könnun menntamálaráðuneytisins5 hafa um 18% grunnskóla- nemenda sérþarfir í námi (8.1% þurfa verulega aðstoð umfram það sem bekkjarkennari getur veitt í almennri kennslu en 9,6% þurfa tímabundna aðstoð). Hluti þessara nemenda fær sérkennslu, en ekki allir. Ýmis- legt bendir til þess að hópur þeirra sem „nýtir sér ekki námstilboð skólans" sé mun stærri. Á samræmdu prófi í íslensku árið 19916 voru 27% nemenda á landinu öllu með einkunnina 5 eða lægri og í stærðfræði voru 38% nemenda með 5 eða lægra. Utkoman var þvínær sú sama árið áður. Niðurstaðan er þó afar mismunandi fyrir hin ýmsu fræðsluumdæmi. í einstaka skólum þurfa allt að tveir þriðju hlutar nemenda sérstakan stuðning vegna félagslegra eða námslegra erfiðleika eins og umsóknir skólanna um aukakennslumagn vegna sérþarfa nemenda bera með sér. Almennt talað J

x

Ný menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný menntamál
https://timarit.is/publication/2011

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.