Ný menntamál - 01.06.1994, Side 12

Ný menntamál - 01.06.1994, Side 12
3 v____________________J Vilborg Dagbjartsdóttir Hlutdeild <35 02 d> 'CÖ Cvi .Q C\i -< < > að koma stundum upp mál sem erfitt er að ræða í skólastofunni en má samt ekki ýta frá sér inn í þögn og afskiptaleysi. Börnin eiga rétt á því að talað sé við þau um það sem brennur heitast á þeim. Kennarinn verður að leitast við að finna svör við stóru spurningunum, þótt kannski sé fátt til svara. Þá er gott að leita til bókmenntanna. Ljóð, sögur og frásagnir geta orðið umræðugrundvöll- ur, þar sem hægt er að tala um sára persónulega reynslu á ópersónulegan hátt. Fyrir um það bil tveimur áratugum kom í bekk til mín drengur á ellefta ári. Hann hafði búið einn hjá móður sinni, sem var ekkja, og langyngstur barna hennar. Nú var hún komin á sjúkrahús og átti þaðan ekki afturkvæmt þar sem hún var langt leidd af krabba- meini. Drengurinn fór daglega að heimsækja móður sína og sá hvernig henni hrakaði stöðugt og smám saman gerði hann sér ljóst að hún var að deyja. Ekki gat ég leitt hjá mér ótta og hljóðláta sorg þessa litla drengs sem mér var trúað fyrir. Hann hafði mikla þörf fyrir að tala um móður sína og hin börnin í bekkn- um vissu hvað var að gerast, en hvernig gat ég nálgast svo viðkvæmt mál? Um þetta leyti hafði mér áskotnast ný, sænsk ljóða- bók, Gröngölingen ar pá vág — Dikter för barn og andra (1974) eftir Barbro Lindgren (fædd 1937). Ég var mjög hrifin af bókinni. Nú valdi ég úr henni nokkur ljóð sem fjölluðu um dauðann á einn eða annan hátt. Ljóðin þýddi ég og fjölritaði til nota í bekknum. Þetta varð dálítið hefti sem ég kallaði Fimm ljóð um dauð- ann. Við lásum ljóðin saman og töluðum um þau og börnin skreyttu þau með teikningum sínum. Þau teikn- uðu líka stærri myndir til að hengja upp á korktöfluna. Það er langt um liðið og ég á enga af myndunum þeirra en samt man ég ljóslega eftir þeim sumum. Þarna voru kistur skreyttar krönsum og blómum, leiði með krossum og legsteinum og tré — lauflaus tré. Myndirnar sögðu svo ótal margt sem við gátum ekki komið orðum að. Undir vorið dó móðir drengsins. Hann kom til mín upp að kennaraborðinu og sagði: „Ætlar þú ekki að koma við jarðarförina hennar mömmu?“ Vissulega gerði ég það. Ég hafði eignast hlutdeild í sorg hans. 12 Vilborg Dagbjartsdóttir er kennari í Austurbæjarskóla.

x

Ný menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný menntamál
https://timarit.is/publication/2011

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.