Golf á Íslandi - 01.12.2010, Síða 8

Golf á Íslandi - 01.12.2010, Síða 8
8 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is RITSTJÓRAPI ST I LL Páll Ketilsson Golf orðið stærst Það voru ánægjulegar tölur sem birtust nýlega og sýndu að golfíþróttin er stærsta íþróttagreinin hjá 16 ára og eldri á Íslandi. Þrátt fyrir kreppu undanfarin tvö ár þá hefur orðið fjölgun í golfíþróttinni á Íslandi og er hún nú fjölmennust hér á landi þegar ungmennin er ekki talin með. Annars er golf í 2. sæti á eftir knattspyrnu. Þetta er mjög góð staða og hana á að nýta golf- íþróttinni til frekari dáða. Hver er ástæðan fyrir þessum vinsældum golfs á Íslandi, kann einhver að spyrja? Svarið kann eflaust að liggja í nokkrum meginþáttum. Þar má eflaust fyrst nefna að það kostar ekki mikla peninga að stunda golf hér á landi. Vellir eru orðnir betri og veðrið er ágætt. Það er hægt að stunda golf allt upp í 7 mánuði. Útlendingar eru hissa þegar maður segir þeim þessa staðreynd. Þá er góður aðgangur að golfvöllum, jafnvel þó fólk sé ekki í golfklúbbi. Þá kostar það reyndar mun meira. Fyrir þá sem eru í golfklúbbum og leika golf nokkrum sinnum í viku er kostnaður við sport- ið lágur miðað við margar aðrar greinar. Mesta aðsóknin er þó á stórhöfuðborg- arsvæðinu sem eðlilegt er, þar sem mesti fjöldi fólks býr. Þar er framboð golfbrauta miðað við fólksfjölda mun minna en úti á landi. Því er það ánægjulegt að Kjalar- menn í Mosfellsbæ skuli vera að ljúka við stækkun vallarins en við kynnum hana í þessu blaði. Þeir fá 300 nýja félagsmenn um leið og þeir stækka. Það er gott fyrir þeirra félagsstarf og reksturinn. En það er nóg pláss í golfklúbbunum rétt utan höf- uðborgarsvæðisins, á Suðurnesjum, Suðurlandi og á Vesturlandi. Það eru fjölmarg- ir golfvellir í innan við klukkustundar akstursfjarlægð frá Reykjavíkursvæðinu og alveg niður í hálftíma. Það þætti ekki löng leið á golfvöll í útlöndum. Allir þessir klúbbar sem eru all margir, geta tekið við miklu fleiri félögum og það myndi hjálpa rekstrinum hjá þeim því hann er víða nokkuð erfiður þó svo ekki heyrist af nein- um vandræðum beint. Miðað við fjölgunina í íþróttinni hlýtur yfirflæðið að renna á þessa staði á næstu árum. Það er talið að hátt í 20 þúsund manns séu utan golf- klúbba. Það þarf að gera átak í að koma þessum áhugasömu kylfingum í golfklúbba því það er bæði ódýrara og betra fyrir þá og fyrir klúbbana og GSÍ. Í viðtali við fimm framkvæmdstjóra golfklúbba á Íslandi í þessu blaði er nokkuð gott hljóð í þeim. Athyglisvert er að heyra í framkvæmdastjóra Vestmannaeyja- klúbbsins sem segir að það hafi orðið mikil aukning í komu kylfinga á völlinn í Eyjum við opnun Landeyjahafnar. Það er ljóst að Eyjamenn horfa fram á breytt landslag í frjálsræði með teigtímaskráningu því síðla sumars þurftu heimamenn sem jafnan geta gengið beint út á þennan frábæra golfvöll að panta tíma. Þeir munu nokkuð örugglega þurfa það áfram (nema Landeyjahöfn loki?) því þetta mun án efa líka þýða fleiri heimsóknir erlendra kylfinga. Þar kemur Golf Iceland verkefnið sterkt inn í. Í grein í þessu blaði kemur fram að 20% aukning varð á heimsóknum erlendra kylfinga í sumar en Golf Iceland samtökin buðu fjölmörg- um fjölmiðlamönnum og golfferðaþjónustufólki til landsins í sumar. Árangur af því starfi er strax farinn að skila sér. Toppurinn á því í ár var án efa tilnefning á stærstu golfráðstefnu í heimi á Spáni í nóvember. Þá komst Ísland í lokaúrslit í tilnefningu til verðlauna í flokknum „Óþekkti golf-áfangastaður ársins“ (Undiscovered Golf Destinaton of the year). Þessi tíðindi munu án efa hjálpa Íslandi við að komast í meira sviðsljós í golfheiminum. Ég vil að lokum senda lesendum Golfs á Íslandi sem fagnaði 20 ára afmæli á árinu bestu óskir um gleðileg jól og farsælt nýtt ár. Megi árið 2011 verða okkur gæfuríkt. Sjáumt hress á golfvellinum á nýju ári. Með golfkveðju, Páll Ketilsson.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Golf á Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.