Golf á Íslandi - 01.12.2010, Síða 10
10 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
Heimsmeistaramótið í golfi fór fram í Argentínu í lok október. Ísland sendi sveitir
til keppni í karla- og kvennaflokki og var leikið á tveimur völlum skammt frá höf-
uðborg Argentínu, Buenos Aires. Kvennaliðið lenti í 42. sæti en karlarnir náðu
góðum árangri þegar þeir urðu í 19. sæti.
Íslenska kvennalandsliðið reið á vaðið og hóf leik þann 20. október. Þrjár Keil-
isstúlkur skipuðu landsliðið að þessu sinni, þær Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Signý
Arnórsdóttir og Tinna Jóhannsdóttir. Guðrún Brá kom inn í landsliðshópinn í stað
Valdísar Þóru Jónsdóttur sem fótbrotnaði í september og missti af mótinu. Það
gekk ekki áfallalaust fyrir kvennasveitina að komast á keppnisstað því golfsettinu
hjá Tinnu Jóhannsdóttur var stolið við komuna til Argentínu. Henni var útvegað
nýtt golfsett með hraði og fékk að mestu þær kylfur sem hún er vön að notast við.
Tinna lék best hjá íslenska liðinu og varð í 104. sæti í einstaklingskeppninni á
307 höggum og varð höggi betri en Signý sem varð í 110. sæti. Guðrún Brá fór
illa af stað í mótinu og lék fyrsta hringinn á 86 höggum en kom sterk til baka og
átti besta hring íslenska liðsins á öðrum hring þegar hún lék á 75 höggum. Hún
lék síðustu tvo hringina á 77 höggum og varð í 126. sæti á samtals 315 höggum.
Íslenska liðið varð í 42. sæti í mótinu á samtals 609 höggum.
Lið Suður-Kóreu fór með öruggan sigur af hólmi í mótinu og lék samtals á 30
höggum undir pari sem er magnaður árangur. Bandaríkin urðu i 2. sæti á 13 högg-
um undir. Í einstaklingskeppni röðuðu Suður-Kóreubúar sér í efstu þrjú sætin og
best lék Jung-Eun Han á 13 höggum undir pari.
Íslenska kvennalandsliðið – 42. sæti 609 högg:
104. sæti Tinna Jóhannsdóttir 78-77-74-78--307 +19
110. sæti Signý Arnórsdóttir 77-80-77-74--308 +20
126. sæti Guðrún Brá Björgvinsdóttir 86-75-77-77--315 +27
Íslensku karlarnir skildu sterkar golfþjóðir fyrir aftan sig
Íslenska karlaliðið lék aðeins þrjá hringi í Heimsmeistaramótinu sökum veðurs
sem varð til þess að einum hring í mótinu var aflýst og var sú ákvörðun nokkuð
umdeild. Kylfingarnir Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR, Hlynur Geir Hjart-
arson úr Keili og Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum léku fyrir Íslands hönd og
náðu frábærum árangri þegar íslenska liðið lenti í 19. sæti af 69 þjóðum sem tóku
þátt í mótinu.
Ólafur Björn lék best hjá íslenska liðinu, samtals á átta höggum yfir pari og varð
í 24. sæti af um 200 kylfingum. „Ég er mjög sáttur með árangurinn okkar á HM
og einnig með mína spilamennsku. Aðstæður voru gríðarlega erfiðar og frekar
súrt að það þurfti að stytta mótið í 54 holur því vellirnir voru frábærir og ótrúlega
gaman að spila í mótinu,“ sagði Ólafur að móti loknu.
„Ég tel að Ísland sé að stimpla sig betur og betur á meðal bestu liða í heimi og
miðað við alla þá efnilegu ungu kylfinga sem eru stöðugt að koma fram á Íslandi
þá er framtíðin mjög björt hjá okkur.“
Íslenska liðið byrjaði af ótrúlegum krafti á lokahringnum og á tímabili komst liðið
í 8. sæti í mótinu. Hlynur Geir, sem varð í 31. sæti í mótinu í einstaklingskeppninni
var mjög sáttur með árangurinn í sínu síðasta landsliðsverkefni en hann gerðist
atvinnumaður að móti loknu.
„Við erum mjög sáttir með árangurinn. Við vorum með hugann við að ná topp-20
fyrir mótið. Ég hélt að þetta væri að stefna eitthvað annað þegar við Óli fengum
örn á fyrstu holu og vorum þá komnir í 8. sæti. Árangurinn hjá okkur er mjög
góður og við erum að skilja fullt af góðum golfþjóðum fyrir aftan okkur, t.d. Spán,
Argentínu, Mexíkó og það var kannski skemmtilegast að vinna Finna sem Staffan
þjálfar,“ sagði Hlynur en Staffan Johansson er fyrrum landsliðsþjálfari Íslands. Kylf-
ingurinn ungi, Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR, fékk eldskírn með íslenska
landsliðinu í mótinu en náði sér ekki fyllilega á strik. Mótið mun hins vegar
vafalaust fara í reynslubankann hjá þessum stórefnilega kylfingi.
Það voru Frakkar sem fóru með sigur af hólmi í mótinu en þeir léku samtals á
sjö höggum undir pari. Frændur okkar, Danir, urðu í öðru sæti á þremur höggum
undir pari og Bandaríkjamenn urðu í þriðja sæti á tveimur höggum undir pari. Í
einstaklingskeppninni var það Daninn Joachim Hansen sem lék best en hann lék
samtals á sex höggum undir pari við afar erfiðar aðstæður.
Íslenska karlalandsliðið – 19. sæti 447 högg:
24. sæti Ólafur Björn Loftsson 73-74-76--223 +8
31. sæti Hlynur Geir Hjartarson 74-72-78--224 +9
114. sæti Guðmundur Ágúst Kristjánsson 75-76-84--235 +20
Heimsmeistaramótið í golfi í Argentínu:
LANDSLIÐIN á HM
Góður árangur hjá
íslenska karlalands-
liðinu í Argentínu
Kvennaliðið f.v. Tinna, Steinunn liðsstjóri, Signý og
Guðrún Brá. Guðmundur Ágúst á teig í æfingahring.
Ólafur og Hlynur ásamt kylfusveini fylgjast með.
Karlaliðið f.v.
Jón Ásgeir for-
seti GSÍ, Hlyn-
ur, Guðmund-
ur, Ólafur og
Ragnar Ólafs-
son, landsliðs-
þjálfari.