Golf á Íslandi - 01.12.2010, Blaðsíða 24
24 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
Það var líf og fjör hjá golfklúbbum landsins um miðj-
an ágústmánuð þegar Sveitakeppni GSÍ fór fram.
Leikið var í fimm deildum í karlaflokki og tveimur í
kvennaflokki og tóku alls 54 sveitir þátt í meistara-
flokki. 1. deild karla var leikin á Hvaleyrarvelli og
konurnar léku á Leirdalsvelli. Óhætt er að fullyrða
að veður hafi sett sitt mark á keppnina á lokakeppn-
isdeginum en þá gerði mikið vatnsveður í bland við
strekkingsvind. Svo fór að GR vann tvöfaldan sigur í
1. deild karla og kvenna og eru því Íslandsmeistarar
í Sveitakeppni.
Það var mikil spenna í 1. deild karla því samankomnir
voru margir af bestu kylfingum landsins á frábærum
Hvaleyrarvelli. GKG hafði titil að verja í mótinu og var
fyrirfram búist við að baráttan yrði á milli meistar-
anna, Keilis, GKj og GR. Allar þessar sveitir komust
nokkuð auðveldlega í undanúrslit og var boðið upp
á frábæra undanúrslitaleiki þar sem úrslitin réðust í
bráðabana í báðum leikjum. Kjölur hafði betur gegn
meisturum GKG í mögnuðum leik þar sem tvöfald-
ur bráðabani réði úrslitum. Kristján Þór Einarsson
tryggði Kili sæti í úrslitaleikinn eftir að hann hafði
betur gegn Sigmundi Einari Mássyni á fjórðu holu í
bráðabana. Í hinni undanúrslitaviðureigninni fór GR
með sigur af hólmi gegn heimamönnum í Keili og fór
sá leikur einnig í bráðabana en Arnar Snær Hákon-
arson hafði betur gegn Sigurþóri Jónssyni á 21. holu.
Það voru því GR og Kjölur sem mættust í úrslitum
og var sú viðureign spennandi. GR náði fljótlega
yfirhöndinni en leikar réðust þó ekki fyrr en á
lokaholunum. GR var 2-1 yfir þegar tveir leikir voru
enn í gangi. Arnór Ingi Finnbjörnsson hafði betur
gegn Magnúsi Lárussyni á 18. flötinni í næstsíðasta
leiknum og var þá ljóst að GR hafði bundið enda á
sjö ára bið sína eftir þessum eftirsótta titli. GR-ingar
fögnuðu vel og innilega í leikslok enda voru flestir
kylfingar sveitarinnar að vinna Sveitakeppnina í
fyrsta sinn. Í leiknum um þriðja sætið var það GKG
sem hafði betur gegn Keili um þriðja sætið, 4/1. Það
var einnig nokkur spenna í botnbaráttunni á Hvaleyr-
arvelli en það voru sveitir NK og GS sem fengu það
óskemmtilega hlutskipti að falla niður um deild.
Öruggur sigur GR í Leirdal
Sveitir GR og GKG mættust í úrslitum 1. deildar
kvenna í Sveitakeppni GSÍ á Leirdalsvelli. GR hafði
slegið út meistarana í Keili í undanúrslitum meðan
SVEITAKEPPNI allar deildir
GR vann tvöfalt
GKG hafði betur gegn GKj. Það var í raun aldrei spurn-
ing hvor sveitin færi með sigur af hólmi því GR vann
viðureignina 4/1. GR hafði tögl og haldir frá upphafi
og sigurinn nær aldrei í hættu. Keilir hafði svo betur
gegn GKj í leik um þriðja sætið, 3,5-1,5. GA og Mostri
þurftu að sætta sig við fall úr 1. deild kvenna. Í þeirra
stað komu GS og Nesklúbburinn upp úr 2. deild.
GA og GKB leika meðal þeirra bestu á næsta ári
Golfklúbbur Akureyrar og Golfklúbbur Kiðjabergs
munu leika meðal þeirra bestu í Sveitakeppni GSÍ á
næsta ári. Sveitir þessara klúbba léku til úrslita í 2.
deild karla og fór GA með öruggan 4,5/0,5 sigur á
Kiðjabergsvelli.
GA endurheimti því sæti sitt í deildinni sem þeir
misstu á heimavelli á síðasta ári. Heimamenn í GKB
fögnuðu einnig þar sem þetta er í fyrsta sinn sem
klúbburinn keppir í 1. deild karla í Sveitakeppninni
og var því mikil gleði hjá Kiðjabergsmönnum. Sveitir
Öndverðarness og Bakkakots þurftu að sætta sig við
fall úr 2. deildinni eftir að hafa orðið í tveimur neðstu
sætunum.
Siggi Pé: „Yngsta sigursveit frá upphafi“
„Þetta var frábær sigur hjá okkur og það var boðið
upp á hörku úrslitaleik gegn Kili,“ sagði Sigurð-
ur Pétursson, liðsstjóri GR, kátur þegar tvöfaldur
sigur GR var í höfn. „Þetta voru allt mjög skemmti-
legir og spennandi leikir og oft þurfti að grípa til
bráðabana.“
Sveit GR er nokkuð ung að árum og eru margir
stórefnilegir kylfingar innanborðs sem eiga bjarta
framtíð framundan á golfvellinum.
„Þetta eru rosalega efnilegir strákar og ég get
fullyrt það að þetta er yngsta sveitin til að vinna
sveitakeppnina frá upphafi. Þetta eru eintómir
pjakkar og því er framtíðin afar björt hjá GR,“ segir
Sigurður en er sigurganga í uppsiglingu hjá GR?
„Það er allavega nægur mannskapur til að gera það
og mjög erfitt að velja í liðið. Það eru 3-4 kylfingar
sem kæmust í flest önnur lið sem fá ekki sæti hjá
okkur. Það er auðvitað svolitlu fargi af mér létt að
við skulum hafa unnið eftir sjö ára bið. Hinir klúbb-
arnir hafa verið mjög sterkir á undanförnum árum
en það er frábært að vinna tvöfaldan sigur í ár.“
Kristján Þór: „Það munaði ekki miklu“
„Við vorum inni í leiknum allan tímann en þetta féll
með GR en ekki okkur,“ sagði Kristján Þór Einarsson,
liðsmaður Kjalar, eftir að hafa beðið lægri hlut
fyrir GR í úrslitaleiknum. GR vann leik þessara liða
í riðlakeppninni en Kristján segir að það hafi ekki
haft nein áhrif.
„Við áttum góðan möguleika á að hirða sigurinn
þrátt fyrir að við hefðum tapað fyrstu tveimur
leikjunum í úrslitaleiknum. Ég var yfir í mínum leik
þegar Maggi (Magnús Lárusson) missti pútt fyrir
bráðabana í sínum leik. Það munaði ekki miklu og
það er sárt að hafa ekki unnið keppnina eftir að
við slógum meistara út í undanúrslitum,“ sagði
Kristján en hann tapaði ekki leik í keppninni.
Þórður Rafn Giss-
urarson slær á 1.
teig á Hvaleyri. Til
hliðar er Ragnhild-
ur Sigurðardóttir í
Leirdalnum.
Sigurlið GR í karla-
og kvennaflokki.