Golf á Íslandi - 01.12.2010, Side 36
36 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
Á Eimskipsmótaröðinni í ár vakti framganga Guðjóns
Reyrs Þorsteinssonar, kylfings úr Golfklúbbnum Kili,
nokkra eftirtekt. Segja má þó að hann sé með sann-
kölluð golfgen enda bróðir Nínu Bjarkar Geirsdóttur,
fyrrum Íslandsmeistara í höggleik. Guðjón hóf að
leika golf á ný fyrir tæpum tveimur árum og hefur
sýnt ótrúlegar framfarir á skömmum tíma. Guðjón
náði að snúa lífi sínu á réttna kjöl árið 2007 eftir
óreglu í fjölda ára og má segja að hann sé búinn að
finna sér nýja fíkn; golf.
„Ég hætti 14 ára í golfi og var í tómu rugli fram til
ársins 2007. Ég sé gríðarlega eftir öllum þessum
árum því ég gæti verið svo miklu, miklu betri í golfi.
Ég byrjaði á fullu á ný árið 2009 en hafði fylgst vel
með Nínu systur og öðrum fjölskyldumeðlimum.
Svo fékk ég allt í einu sjúklegan áhuga á íþróttinni
og hreinlega límdist við golfvöllinn. Forgjöfin hefur
hreinlega hrunið.“
Mætti ósofinn í fyrsta mótið
Það gekk ekki átakalaust fyrir Guðjón að hefja keppni
á Eimskipsmótaröðinni. Hann velti því lengi fyrir sér
hvort hann ætti yfir höfuð erindi á mótaröðina og
margskráði sig úr mótinu.
„Ég ákvað að taka sénsinn og skráði mig til leiks í
mótið í Vestmannaeyjum á Eimskipsmótaröðinni.
Ég var búinn að hætta mörgum sinnum við að vera
með og hringdi á skrifstofu GSÍ og lét afskrá mig úr
mótinu. Pétur Óskar [mágur Guðjóns, innskot blaða-
manns] náði að plata mig með til Vestmannaeyja og
ég var svo stressaður að ég svaf ekkert nóttina fyrir
mótið. Ég lét svo slag standa og lék mjög vel á fyrsta
hringnum, á 73 höggum þrátt fyrir að vera ósofinn.
Það var kveikjan að því að ég ákvað að æfa ennþá
meira og vera með á mótaröðinni.“
Með golf á heilanum
„Ég er með golf á heilanum. Síðasta sumar æfði ég
daglega og keppti í mótum um hverja helgi. Þessi
árangur hefur komið sjálfum mér mest á óvart og
áður var þetta svo fjarlægt að ég þorði ekki einu
sinni að láta mig dreyma um þetta. Nú set ég markið
mun hærra og ætla mér að verða miklu betri en ég
er í dag. Markmiðið núna er að verða betri en Pétur
Óskar,“ segir Guðjón Reyr og hlær og er nú byrjaður
að æfa með meistaraflokki GKj.
„Mér hefur verið boðið að taka þátt í meistaraflokks-
starfinu hjá Kili og Ingi Rúnar [íþróttastjóri GKj,
innskot blaðamanns] hefur verið duglegur að draga
mig á æfingar. Fyrir mig er heiður að fá að taka þátt
í þessu starfi. Áhuginn hjá mér er mikill og ég held
að kylfingar geti farið ansi langt á áhuganum einum
saman.“
Í upphafi árs 2009 var Guðjón Reyr með á milli 12-
10 í forgjöf en fékk þá þessa ævintýralegu golfdellu
sem hefur heldur betur undið upp á sig. Í dag er
hann með 4,2 í forgjöf og stefnir á að lækka hana
enn frekar á næsta ári. Besti árangur hans á Eim-
skipsmótaröðinni í sumar var 22. sæti í lokamótinu
á Hellu. „Það var frábær árangur fyrir mig og á fyrri
hringnum hitti ég aðeins þrjár flatir en þurfti aðeins
22 pútt á hringnum,“ segir Guðjón sem lék báða
hringina í mótinu á 75 höggum. „Takmarkið hjá mér
fyrir næstu leiktíð er að enda meðal tíu efstu í móti
á mótaröðinni, það væri algjör draumur,“ sagði þessi
hressi kylfingur úr Mosfellsbæ.
Vissir þú að Colin Montgomerie var með sex í forgjöf þegar hann var átján ára
gamall? Tíu árum síðar var hann einn af bestu kylfingum heims og var valinn í lið
Evrópu í Ryder-bikarnum sem fram fór á Kiawah-eyjum við strendur Suður-Kar-
ólínu í Bandaríkjunum. Þessi staðreynd sannar að það er aldrei of seint að byrja í
golfi. Galdurinn við golfíþróttina er sá að allir geta keppt við alla með sanngjörn-
um hætti. Forgjafarkerfið hefur gert það að veruleika. Draumur flestra kylfinga er
að leika meðal þeirra bestu í heimi. Þó fæstir kylfingar nái því markmiði er hægt
að setja sér önnur markmið. Hér á Íslandi eru margir með það markmið að skipa
sér í röð bestu kylfinga landsins áður en hugað er að heimsyfirráðum. Þeir kylf-
ingar sem hafa æft frá unga aldri hafa vissulega forskot hvað varðar getu en með
miklum dugnaði og sleitulausum æfingum er hægt að brúa það bil, rétt eins og
Montgomerie gerði á sínum tíma.
Sneri við blaðinu
og féll fyrir golfinu
Það er aldrei of seint að byrja í golfi
segir bróðir Nínu Bjarkar
G O L F nýir kylfingar
Guðjón Reyr og
Nína á golfvellinum.