Golf á Íslandi - 01.12.2010, Side 41
41GOLF Á ÍSLANDI •DESEMBER 2010
Fór á taugum í Kiðjabergi
Stigameistari karla, Hlynur Geir Hjartarson átti frábært golfár innan
sem utan vallar og segist aldrei hafa leikið betur en...
HM í Argentínu hátindur ferilsins
Hlynur Geir tók þátt í sínu stærsta verkefni á ferlinum
í lok október þegar hann lék með íslenska landsliðinu
á Heimsmeistaramótinu í Argentínu. Íslenska liðið
náði sínum besta árangri frá upphafi en litlu munaði
að Hlynur færi ekki með þar sem nýfæddur sonur
hans kom ekki í heiminn fyrr en örfáum dögum áður
en liðið hélt út til Argentínu. „Ég er ekki viss um að ég
hefði farið ef hann hefði ekki verið kominn í heiminn
áður en við áttum flug út,“ segir Hlynur sem lukkulega
náði mótinu sem hann álítur hátind ferilsins.
„Heimsmeistaramótið í Argentínu er líklega hátindur
ferilsins. Takmarkið var að reyna að komast í topp-
20 en eftir því sem á leið á mótið þá var það ekki
úr myndinni að ná jafnvel ennþá lengra. Þegar við
horfum á þær þjóðir sem enda í kringum okkur, þjóðir
sem leggja gríðarlegan metnað í golfíþróttina, þá er
það hreinlega afrek að ná 19. sætinu. Það var gríð-
arlega gaman að vera hluti af þessu liði og mikill
heiður,“ segir Hlynur sem þurfti að bíða lengi eftir
tækifærinu með landsliðinu.
„Ég var loksins valinn með herkjum árið 2008 þegar
Staffan [Johansson, innsk. blm.] var á sínu lokaári með
landsliðið. Ég verð að viðurkenna að ég var orðinn
nokkuð pirraður, sérstaklega eftir að ég var ekki val-
inn í landsliðið fyrir Norðurlandamótið árið 2005. Það
kom viðtal við Staffan í Morgunblaðinu nokkrum dög-
um fyrir mót í Korpunni þar sem hann sagðist ætla að
velja þá kylfinga sem stæðu sig vel í mótinu. Ég vann
mótið án þess að tapa höggi en var ekki valinn. Ég var
gríðarlega vonsvikinn enda hafði ég alltaf stefnt að
því að komast í landsliðið. Það var tvennt í stöðunni
þarna, að kvarta og væla eða spýta í lófanna og spila
þannig að það væri ekki hægt að líta framhjá mér.
Ætli mér hafi ekki tekist að gera það síðarnefnda,“
segir Hlynur og hlær.
Öðlaðist marga ára reynslu á einum hring
Landsliðsferillinn er nú á enda hjá Hlyni því hann
gerðist atvinnumaður þann 1. nóvember. Hann er
golfkennari í hlutastarfi og verður að vera atvinnukylf-
ingur til að mega sinna því starfi. Þótt hann kveðji
landsliðið með söknuði eignaðist hann dýrmætar
minningar á þessum tveimur árum.
„Ég hef átt frábærar stundir með landsliðinu þó þetta
hafi ekki verið langur tími. Ég æfði gríðarlega vel fyrir
fyrsta mótið mitt á Ítalíu árið 2008 og ætlaði mér
stóra hluti. Ég man að á fyrstu flötinni þá gat ég varla
haldið á pútternum, ég titraði svo mikið. Ég var í hálf-
gerðu taugaáfalli allan hringinn. Á þessum eina hring
öðlaðist ég líklega margra ára reynslu,“ segir Hlynur
sem telur að nú sé verkefnum utan landssteinanna
líklega lokið.
„Ætli það sé ekki helst að keppa í Heimsmeistaramóti
atvinnukylfinga. Annars skaut Ragnar Ólafsson
[Landsliðseinvaldur, innsk. blm] því á mig á dögunum
að ég ætti að vera í toppformi næstu árin og undirbúa
mig fyrir Evrópumót öldunga. Ég benti honum á það
eru góð 16 ár þangað til,“ sagði þessi 34 ára kylfingur
að lokum og rak upp hláturskell.
„Ég fann það strax í upphafi leiktíðar að ég var að leika vel og fékk strax mik-
ið sjálfstraust. Ég var ekki langt frá Íslandsmeistaratitlinum en ég fór hrein-
lega á taugum á seinni níu holunum á lokahringnum í Kiðjabergi. Ég hef
aldrei áður verið almennilega í baráttunni um titilinn og þessi reynsla mun
vafalaust hjálpa mér í framtíðinni. Ég hef nægan tíma til að ná þessum titli.“
Hlynur á lokadegi Íslands-
mótsins í höggleik í Kiðjabergi.
Hlynur á lokadegi með Birgi
Leifi og Sigmundi Einari.