Golf á Íslandi - 01.12.2010, Side 52

Golf á Íslandi - 01.12.2010, Side 52
52 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is Engin kylfa hefur beyglast né brotnað síðan 2008 Guðjón HENNING GKG Guðjón Henning á 30 sekúndum: Klúbbur: GKG Aldur: 22 Forgjöf: 0,1 Leyndur hæfileiki: Óslípaður demantur í eldhús- inu Besti hringur: 65 (-6) á Keili í sumar Hola í höggi: 1 Uppáhalds kylfingur: Paul Casey Draumaráshópurinn: Paul Casey, Michael Jordan, Derrick Moore og ég með George Aranis sem kylfusvein. Uppáhalds kylfa: Að velja á milli wedge-anna sinna er eins og að velja á milli barnanna sinna en ef ég er tilneyddur þá kýs ég Gapparann (52°). Stefnir á Evrópumótaröðina 2012 Lítið fór fyrir Ástu Birnu Magn- úsdóttur á árinu sem er að líða. Hún hélt til Þýskalands í nám og lék því ekkert á Eimskipsmótaröðinni í sum- ar. Hún gekk í Lippstadt golfklúbb- inn og varð klúbbmeistari í sumar. Hún er með háleit markmið og ætlar sér að reyna við Evrópumótaröðina árið 2012. Ásta segir söknuðinn af keppni á íslensku mótaröðinni ekki vera mikinn en saknar fjölskyld- unnar. Hvernig gekk þér í golfinu í Þýska- landi á árinu? Golfið í sumar gekk alveg þokkalega. Þetta var fyrsta sumarið hér úti og var í rauninni bara til þess að sjá hvernig þetta gengi fyrir sig. Á næsta ári er markið sett hærra og enn hærra fyrir 2012. Ég stefni á að fara í úrtökumót fyrir Evrópumótaröðina í desember 2012. Hvernig var að vera ekki með á mótaröðinni í sumar? Ég verð að segja það að það var rosalega gaman að prufa eitt- hvað annað en að spila bara á Ís- landi og ég hlakka til næsta tímabils hér úti. Ég ætla að spila á nokkrum stærri mótum á næsta ári í Þýskalandi. Er söknuður af Íslandi og íslenska golfinu? Það er ekki mikill sökn- uður af íslenska golf- inu, en það er erfitt að vera svona langt frá fjölskyldunni. Þau komu til mín í sumar í fjórar vikur og var alveg frábært að hafa þau hjá mér. Þau styðja vel við bakið á mér í því sem að ég er að gera og það er mjög mikilvægt. Hefur þú bætt þig mikið á tíma þín- um í Þýskalandi? Já, ég hef bætt mig eitthvað. Sveiflan er orðin mjög góð og ég er að slá töluvert lengra. Í sumar var ég að spila mjög stöðugt golf, meðalskorið mitt var um þrjú högg yfir par. Forgjöfin lækkaði einnig, er komin niður í einn og ég er komin í topp-100 meðal kvenna í Þýskalandi. Hver var hápunktur sum- arsins og hver voru mestu vonbrigðin? Hápunkturinn var að vinna Präsidentin Cup með vallarmeti á þremur höggum undir pari. Mestu vonbrigðin var að það kom smá lægð í upp- hafi tímabilsins. Hvaða kylfingur á Íslandi kom að þínu mati mest á óvart í sumar? Guðmundur Ágúst og Ólafía komu skemmtilega á óvart í sumar. Verður þú með á íslensku mótaröð- inni á næsta ári? Ég á eftir að skoða það hvernig það kemur saman með sumarfríið og mótin hér úti. Mótaskráin er komin út fyrir næsta tímabil hér úti en ég veit ekkert hvenær mótin eru heima á Íslandi. Ásta Birna á 30 sekúndum:Klúbbur: Golfclub Lippstadt Aldur: 22 Forgjöf: 1 Besti hringur: -4 Hola í höggi: Einu sinni á 3. holu í Keili (par-4) Uppáhalds kylfingur: Martin KaymerDraumaráshópurinn: Martin Kaymer, Adam Scott og Tiger Woods Uppáhalds kylfa: 50° fleygjárn Ásta Birna Magnúsdóttir GOLFÁRIÐ 2010 spurt og svarað Guðjón Henning Hilmarsson úr GKG er einn þeirra kylfinga sem kom skemmtilega á óvart í sumar. Hann varð þriðji í Íslandsmótinu í holukeppni eftir að hafa lotið í gras fyrir Birgi Leifi Hafþórssyni í undanúrslit- um. Hann varð í níunda sæti á stigalista Eimskips- mótaraðarinnar og var í liði Höfuðborgarsvæðisins sem tapaði fyrir Landsbyggðinni í KPMG-Bikarnum. Sjálfur segist Guðjón vera að fara fram sem kylfingur og er mun rólegri og yfirvegaðri á golfvellinum. Hver voru helstu markmiðin þín í sumar og náðir þú þeim? Í sumar setti ég mér þau markmið að komast aftur í landsliðið og sigra á mótaröðinni og Meistaramótið. Því miður gekk ekkert af þessum markmiðum upp en ég tapaði fyrir Birgi Leifi bæði í Meistaramótinu og Íslandsmótinu í holukeppni. Það er engin skömm að tapa fyrir besta kylfingi landsins og ef hann kemst inn á Evrópumótaröðina á ég væntanlega inni hjá honum nokkra kalda. Hver var hápunktur sumarsins og mestu vonbrigðin? Það eru nokkrir hlutir sem standa upp úr hjá mér í sumar. Þar ber helst að nefna þriðja sætið í lands- mótinu í holukeppni og sveitakeppninni og síðan þegar ég stal sigrinum á Bushnell-mótaröðinni fyrir framan nefið á félaga mínum Axel Bóassyni. Mestu vonbrigðin eru sennilega að hafa ekki komist aftur í landsliðið. Það var einnig mjög súrt að þurfa að tapa svo naumt í Bikarnum gegn sveitalubbunum. Í hvaða þætti golfsins bættir þú þig mest í sumar? Sveiflan mín er orðin mun stöðugri sem veldur því að dýrkeyptum klaufahöggum hefur fækkað sem er bara jákvætt. Einnig er ég orðinn mun sterkari andlega heldur en áður og ég er mikið rólegri og yfirvegaðri á golfvellinum. Augljós sönnun á því er að engin kylfa hef- ur beyglast né brotnað hjá mér síðan sumarið 2008. Hvenær gekk þér best og hvenær verst í sumar? Í sumar gekk mér verst á mótunum í Vestmanna- eyjum og Oddi á mótaröðinni þar sem ég var langt frá því að vera sáttur við mína spilamennsku. Ég hélt mínu striki og hélt áfram að æfa vel sem skilaði sér með mjög góðum endi á sumrinu. Frá öðrum hring í Meistaramótinu og til enda sumars var ég með meðalskor upp á 71,8 ásamt mjög góðri spilamennsku í Íslandsmótinu í holukeppni og Sveitakeppninni. Hvaða kylfingur kom mest á óvart í sumar? Að mínu mati kom stórvinur minn hann Björgvin Smári mér mest á óvart í sumar. Hann hefur verið að glíma við erfið meiðsli og ekki getað æft reglulega undanfarin ár. Hann kom sterkur upp úr meiðslunum og sýndi flotta takta oft á tíðum í sumar. Einnig var gaman að sjá hinn unga Ragnar Má Garðarsson spila á 69 höggum á Urriðavelli á Eimskipsmótaröðinni í sumar. Hvað var það skrýtnasta sem þú upplifðir eða varst vitni að á golfvellinum í sumar? Það virðist vera einhver siðferðisleg skylda hér á Ís- landi að segja á sumrin að veðrið sé alltaf gott. Allir voru að tala um hvað það var gott veður síðastliðið sumar en samt keppti ég alltaf í regnbuxum mót eftir mót, skrýtið ekki satt? Í því samhengi er gott að nefna fyrsta dag Meistaramótsins þar sem var gríðarlega mikið rok. Ég var að vippa inn á 3. flötina og vippaði næstum ofan í, en áður en ég náði að merkja boltann fauk boltinn í burtu og næstum út af flötinni. Næst púttaði Bjarki Freyr félagi minn og boltinn hans var á leiðinni ofan í þegar allt í einu kom einhver tryllt vindhviða og feykti boltanum hans til baka og aftur fyrir Bjarka. Eftir holuna viss- um við eiginlega ekki hvort við ættum að hlægja eða gráta.

x

Golf á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.