Golf á Íslandi - 01.12.2010, Síða 54

Golf á Íslandi - 01.12.2010, Síða 54
54 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, sló fyrsta höggið á nýjum og glæsilegum mini-púttvelli sem opnaður var um miðjan ágúst í Skemmtigarðinum í Gufunesi. Völlurinn er allur hinn glæsilegasti og er m.a. risastórt sjóræningjaskip í miðjum vellinum sem setur skemmtilegan blæ á völlinn. Jón Gnarr tók 18 holu hring á vellinum ásamt aðstoð- armanni sínum, Birni Blöndal. Frammistaða þeirra á púttvellinum var ekki upp á marga fiska en úr varð að Jón fagnaði sigri, sló 53 högg og vann með eins höggs mun. Sjálfur sagði borgarstjórinn eftir hringinn að hann þyrfti að kynnast boltanum og kylfunni betur áður en hann færi aftur á völlinn. „Þetta var mjög skemmtilegt. Það tók mig smá tíma að kynnast pútternum. Eftir að ég skírði pútterinn Magnús þá náðust betri tengsl okkar á milli og við fórum að vinna þetta saman,“ sagði Jón en er golf eitthvað sem heillar hann? „Ég sé alveg fyrir mér að leggja golfið fyrir mig í framtíðinni, en þá helst í bún- ing. Ég var í gallabuxum og það er mjög sjoppulegt. Maður spilar auðvitað ekki golf í gallabuxum.“ Golfferill Jóns er afar stuttur og hefur hann aldrei leikið golf nema fyrir framan myndavélarnar. „Ég hef aldrei spilað alvöru golf en gerði það reyndar örlítið í myndinni „Maður eins og ég“. Þá átti ég að þykjast G O L F fréttir Jón Gnarr vígði glæsilegan pútt- völl í Gufunesi geta eitthvað í golfi. Ég held samt að þetta sé eitthvað sem maður verður að prófa. Ég ætla ekki að enda eins og Hasselhoff, alltaf í sandinum. Ég er aldrei í sand- inum,“ sagði Jón Gnarr eftir að hann vígði glæsilegt sjóræningjaskip sem stendur í garðinum miðjum og var skírt í höfuðið á Jóni. Völlurinn er rekinn af Skemmtigarðinum í Grafarvogi en skammt frá mini-púttvellinum er stór litboltagarð- ur sem hefur verið nokkuð vinsæll frá því að hann opnaði. Nokkur mannfjöldi kom á opnunardagskrána og var hápunkturinn þegar Jón Gnarr afhjúpaði nafn sjóræningjaskipsins sem stendur í miðju púttvall- arins. Það kom borgarstjóranum í opna skjöldu þegar hann sá að nafn skipsins var nefnt eftir honum sjálf- um, Gnarr. Undirritaður hefur verið samningur milli Golf- klúbbs Oddfellowa (GOF) annars vegar og Golfklúbbsins Odds (GO) hins vegar um rekstur golfvallarins í Urriðavatnsdölum. Með þeim samningi sem nú liggur fyrir milli golfklúbbanna mun Golfklúbburinn Oddur taka á leigu golfvelli, mannvirki og lausafé til rekst- urs svæðisins og jafnframt dregur Oddfellow- hreyfingin sig alfarið út úr rekstri vallarins. Þessi áherslubreyting er eðlilegt framhald af þeirri stefnumótun sem fram hefur farið undanfarið ár og endurspeglar ákveðinn vilja félagsmanna um að GO verði almennt íþróttafélag sem stendur öllum opið, ung- um sem öldnum. Með þessari breytingu er aðgangur félagsmanna í GO að Urriðavelli tryggður til framtíðar. Vonast er til að þessi breytta tilhögun verði meðal annars til þess að færa starfsgrundvöll Golfklúbbsins Odds nær öðrum almennum golfklúbbum ásamt því að gera alla verkaskipt- ingu í starfi klúbbsins skýrari. Á myndinni eru þeir Ingi Þór Hermannsson, form. GO og Grímur Halldórsson frá GOF. Oddur og Oddfellow semja um Urriðavöll
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Golf á Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.